Sendiráð Íslands - Vín, Austurríki
Naglergasse 2/3/8 1010 Wien - Tel +43 1 533 2771
Naglergasse 2/3/8 1010 Wien - Tel +43 1 533 2771
Íslensk myndlistasýning, HÉRNA - Ísland hér og nú, í Salzburg dagana 22.09.- 09.11. 2007.
Sinfóníuhljómsveit Íslands mun halda tónleikar 19. febrúar nk., kl. 19.30, í Wiener Konzerthaus.
Dreamlands Burn sýningin samanstendur af verkum yfir 30 norrænna listamanna og er bæði stærsta og metnaðarfyllsta listfrumkvæðið á svæðinu í heila öld
>>>
Selkórinn, Drengjakór Þorgeirsbræðra og Karla- og Kammerkór Oddfellow eru væntanlegir til Vínar fyrstu helgina í aðventu og munu kórarnir koma fram á tónleikum í ráðhúsi Vínar og Péturskirkjunni.
>>>
Dagana 16. og 17. nóvember 2006 fór fram í Vín ráðstefna gegn mansali á vinnuafli hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE) en sú starfsemi ÖSE er meðal þess sem Ísland leggur hvað mesta áherslu á.
>>>
Íslenskir ríkisborgarar sem hafa verið búsettir erlendis lengur en 8 ár munu falla sjálfkrafa af kjörskrá 1. desember 2006 samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis. Þeir sem vilja kjósa í alþingiskosningunum 2007 þurfa því að sækja um að vera teknir á kjörskrá fyrir 1. desember 2006 vilji þeir halda kosningarétti.
>>>
Að kvöldi föstudagsins 17. nóvember 2006 verða haldnir tónleikar í klaustri austurríska bæjarins Seitenstetten þar sem viðstöddum gefst færi á að njóta íslenskra og austurrískra tóna.
>>>
Laugardaginn 4. nóvember 2006 verður sýningin „erna+erich präsentieren“ opnuð í Vín, Austurríki
>>>
Rithöfundurinn Steinunn Sigurðardóttir mun lesa upp úr bók sinni, Ástin Fiskana, sunnudaginn 22. október 2006 klukkan 18:00 í bókabúðinni Thalia á W3 Wien Mitte, Landstraßer Hauptstraße 2a/2b, 1030 Wien.
>>>
Þann 1. október 2006 fóru fram þingkostningar (Nationalratswahl) í Austurríki. Samkvæmt bráðabirgðarniðurstöðum er ríkisstjórn Schüssels kanslara fallin.
>>>
Karlakór Reykjavíkur mun halda góðgerðartónleika til styrktar krabbameinssjúkum börnum í Vínarborg þann 6. ágúst 2006 í Minoriten Kirche og hefjast tónleikarnir klukkan 19.30. Kirkjan er staðsett á Minoriten Platz í 1. hverfi og næsta lestarstöð er Herrengasse með línunni U3.
Nýr utanríkisráðherra, Valgerður Sverrisdóttir, tók við embætti 15 júni sl. af Geir H. Haarde sem gegndi embætti utanríkisráðherra frá 27. september 2005 en tók nú við embætti forsætisráðherra.
Kvennakórinn Ljósbrá heldur tónleika í Votivkirche í Vín föstudagskvöldið 2. júní 2006 kl. 19:00. Einsöngvarar verða Einar Th. Guðmundsson, barinton og sópransöngkona Katharine M. Guðmundsson.
Skáldið og fræðimaðurinn Bergsveinn Birgisson verður með upplestur úr skáldsögu sinni Landslag er aldrei asnalegt við Norrænudeild Vínarborgarháskóla þann 17. maí næstkomandi. Hann mun einnig lesa nokkur ljóð. Upplesturinn verður á íslensku og þýsku. Daginn eftir (18. maí) verður hann svo með fyrirlestur um dróttkvæði á ensku. Fyrirlesturinn ber heitið What have we lost by writing og fjallar meðal annars um fagurfræði og kristið myndmál í dróttkvæðum.
Fimmtudaginn 27. apríl kl. 19.30 fara fram kynningartónleikar í "Metallener Saal" í Musikverein.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga 27. maí nk. fer fram í öllum sendiráðum Íslands erlendis og aðalræðisskrifstofum Íslands í New York og Winnipeg og hefst mánudaginn 3. apríl 2006. Einnig er unnt að kjósa utan kjörfundar hjá kjörræðismönnum Íslands erlendis, samanber meðfylgjandi lista.
Íslandskvöld undir yfirskriftinni "Island: ein Abend mit Bildern und Musik, der Ihnen die Natur und Kultur Islands näher bringen wird"verður haldið í náttúrusögusafninu í Vín miðvikudagskvöldið 12. april og hefst kl. 19:00.
Alþjóðleg listakvennahátíð “her position in transition” í Vín 4.-18. mars 2006 - leikkonan Pálina Jónsdóttir tekur þátt
Þann 13. október sl. var skrifað undir aðstöðusamning milli íslenskra stjórnvalda og undirbúningsnefndar samnings um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn (Preparatory Commission for the Comprehensive Nuclear-Test-Ban Treaty Organization, CTBTO) um tvær eftirlitsstöðvar stofnunarinnar sem staðsettar eru á Íslandi.
Ljóðatónleikar Rannveigar Fríðu Bragadóttur, mezzosopran og Juliu Tinhof, píanó, verða haldnir í Vín þriðjudaginn 11 október 2005, kl. 19.00.
Listsýning verður opnuð föstudaginn 26. ágúst 2005 að Brick-5, Fünfh Vín, sem íslenskir listamenn taka þátt í.
Hinn 27.júlí f.m. var opnuð í Salzburg í Austurríki samsýning á verkum íslensku myndlistarmannanna Helga Þorgils Friðjónssonar og Eggerts Péturssonar.
Samsýning Helga Þorgils Friðjónssonar og Eggerts Péturssonar í Salzburg 27. júlí til 24. ágúst 2005.
Fréttatilkynningar vegna afhendinga trúnaðarbréfa Sveins Björnssonar, sendiherra Íslands í Vín, gagnvart umdæmislöndum sendiráðsins og alþjóðastofnunum sem sendiráðið hefur fyrirsvar gagnvart.