Sendiráð Íslands í Brussel, Belgíu
Rond-Point Schuman 11, 1040 Bruxelles - Sími +32 (0)2 238 50 00
Rond-Point Schuman 11, 1040 Bruxelles - Sími +32 (0)2 238 50 00
Starfsemi sendiráðsins snýr aðallega að Evrópusamstarfi vegna EES-samningsins og þátttöku Íslands í Schengen samstarfinu. Önnur starfsemi sendiráðsins varðar hefðbundið hlutverk sendiráða, þ.e.a.s. að veita aðstoð við Íslendinga í umdæmisríkjunum (Belgíu, Lúxemborg, og Sviss) og gæta hagsmuna Íslands, s.s. á sviði utanríkis-, viðskipta- og menningarmála.
ERFIÐLEIKAR Á FJÁRMÁLAMARKAÐI
Átt þú í erfiðleikum vegna aðstæðna á fjámálamarkaði? Vantar þig upplýsingar? Hér að neðan er að finna ýmis svör við spurningum sem kunna að vakna og bent á ýmsar leiðir þér til aðstoðar:
Upplýsingamiðstöð fyrir almenning, fyrirtæki og fjölmiðla
Upplýsingar um borgaraþjónustu
Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra sat 30. fund EES-ráðsins sem fór fram í Brussel í dag, 13. nóvember. Í EES-ráðinu sitja utanríkisráðherrar aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins ásamt fulltrúum framkvæmdastjórnar ESB.
Vegna þeirra erfiðleika sem nú ríkja í íslensku fjármálalífi hafa íslensk stjórnvöld ákveðið að opna upplýsingamiðstöð fyrir almenning, fyrirtæki og fjölmiðla, innanlands sem utan.