Vegabréf
Vegabréf
Umsókn um íslenskt vegabréf
Hægt er að sækja um íslenskt vegabréf í sendiráðinu í Ottawa og hjá ræðismönnum Íslands í Kanada og umdæmislöndum sendiráðsins (Ekvador, Kostaríka, Kólumbía, Níkaragva, Panama, Perú og Venesúela). Sendiráðið sér síðan um að senda umsóknir til Útlendingastofnunar.
Þegar sótt er um vegabréf þarf að koma á umsóknarstað með gamla vegabréfið, passamynd og "record of landing" (ef viðkomandi er handhafi þess). Hafi gamla vegabréfið glatast eða verið stolið þarf að fylla út tilkynningu um það samhliða vegabréfsumsókn.
Þegar sótt er um vegabréf fyrir barn (yngri en 18 ára) þurfa báðir foreldrar (eða forsjáraðili ef barn lýtur forsjá eins aðila) og barnið að koma á umsóknarstað til að ganga frá umsókn. Geti ekki annað foreldrið mætt á staðinn þarf löggilda yfirlýsingu frá því að það samþykki vegabréfsumsókn barnsins. Þegar sótt er um vegabréf fyrir barn í fyrsta skipti þá þarf að koma með ljósrit af fæðingarvottorði barnsins og tilkynning um kennitölu þess frá Þjóðskrá.
Gjaldskrá vegabréfa fyrir Kanada:
Fullorðnir 18 ára til 66 ára: CAD 120.00 (sendingargjöld innifalin)
Fullorðnir 67 ára og eldri: CAD 63.00 (sendingargjöld innifalin)
Börn 0 ára til 17 ára: CAD 63.00 (sendingargjöld innifalin)
Gjaldskrá vegabréfa fyrir Suður-Ameríku:
Fullorðnir 18 ára til 66 ára: CAD 90.00 (auk sendingargjalda)
Fullorðnir 67 ára og eldri: CAD 33.00 (auk sendingargjalda)
Börn 0 ára til 17 ára: CAD 33.00 (auk sendingargjalda)
Vegabréf eru gefin út á Íslandi. Afgreiðslutími er að jafnaði 3-4 vikur. Sendiráðið sendir viðkomandi vegabréfið um leið og það berst frá Íslandi.
Vinsamlegast athugið að nafn viðkomandi þarf að vera rétt skráð í Þjóðskrá til að hægt sé að gefa út vegabréf. Ef um misræmi á nöfnum er að ræða þá þarf að tilkynna Þjóðskrá (bréfasími: +354-569-2949) um rétt nöfn og senda þeim afrit af giftingarvottorði, ef við á.





