Sendiráð Íslands - Ottawa, Kanada

360 Albert Street, Suite 710, Ottawa, ON K1R 7X7 - Sími: +1 (613) 482 1944



Vegabréf

Umsókn um íslenskt vegabréf

vegabrefFrá og með 17. maí 2006 er einungis hægt að sækja um íslensk vegabréf á Íslandi. Í júlí 2006 verður hægt að sækja um vegabréf í sendiráðum Íslands í Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, Osló, Lundúnum og Washington. Ræðismenn í umdæmi sendiráðsins taka ekki lengur við vegabréfsumsóknum. Ræðismenn geta hins vegar framlengt vegabréf um eitt ár frá þeim degi sem að vegabréfið rann út. Í brýnustu neyð geta ræðismenn gefið út neyðarvegabréf. Neyðarvegabréf eru einungis gefin út ef umsækjandi getur ekki sótt vegabréf í sendiráði eða á Íslandi. Taka skal fram að neyðarvegabréf eru ekki ákjósanleg ferðaskilríki.



 

 

Leturstærð: