Íslensk myndlist í Beijing
Íslenska sendiráđiđ tekur ţátt í myndlistarsýningunni „One World One Home" sem stendur yfir í einu Borgarsafni Beijing (e. Capital Museum) dagana 11 til 13. ţ.m. Safniđ er nýbyggt og eitt glćsilegasta listasafn í Kína. Menningarmálaráđuneyti Kína er ađalskipuleggjandi sýningarinnar, en lögđ er áhersla á tengingu sýningarinnar viđ Ólympíuleikana í ár.
Á sýningunni eru sýnd rúmlega 300 málverk frá sendiráđum 64 ríkja í Beijing. Auk Íslands taka m.a. sendiráđ Noregs og Svíţjóđar, og 10 annarra Evrópuríkja ţátt í sýningunni. Ljóst er ađ hér gefst gríđarlega gott tćkifćri til ađ kynna íslenska myndlist á helsta listasafni Kína.
Framlag sendiráđsins til sýningarinnar eru mynd eftir Snorra Arinbjarnar (uppstilling) í eigu Listasafns Reykjavíkur, auk verka eftir Kristján Davíđsson, Helga Ţorgils Friđjónsson og eftir Guđmund Thoroddsen, sem koma úr einkasafni sendiherra Íslands.
Ţetta er í ţriđja skipti sem sýning á verkum í eigu sendiráđa er haldin í Beijing, en ţetta er í fyrsta skipti sem sendiráđ Íslands tekur ţátt í sýningunni. Síđasta sýning var áriđ 2003.
Eftir ađ sýningunni lýkur í Beijing mun hluti hennar flytjast til annarra safna í Lanzhou í Gansu fylki og Zhengzhou í Henan fylki. Áćtlađ er ađ sýningum ţar ljúki um miđjan október n.k.
Frekari upplýsingar um sýninguna er hćgt ađ nálgast á vefslóđinni: http:77www.capitalmuseum.org.cn/ty/ty/htm.

