Kynning á viðskiptaumhverfi á Íslandi
Jón Trausti Sæmundsson starfsmaður sendiráðsins tók þátt í sérstakri kynningarferð viðskiptafulltrúa evrópskra sendiráða til Hebei fylkis, 23. til 24. þ.m. Fulltrúar sendiráða allra Norðurlandanna, Þýskalands, Sviss og Austurríkis tóku þátt í ferðinni. Haldnir voru tvennir kynningarfundir, í Shijiazhuang og í Handan, þar sem þátttakendur kynntu viðskiptaumhverfi sinna heimalanda fyrir fulltrúum atvinnulífs Hebei, borgar- og fylkisyfirvalda. Auk þess voru heimsótt fyrirtæki í borgunum.

