Jarðskjálftinn í Sichuan fylki
Sendiráð Íslands fylgist grannt með atburðunum í Sichuan fylki.
Sterkur jarðskjálfti reið yfir Sichuan fylki þann 12. maí og er mannfall gríðarlegt. Sendiráðið biður þá Íslendinga sem eru á ferð um svæðið að láta þegar vita vita af ferðum sínum.
Ekki bara borist neinar fregnir af Íslendingum í verulegum erfiðleikum á þessu svæði, en sendiráðið hvetur fólk til að koma slíkum upplýsingum á framfæri hið fyrsta við utanríkisráðuneytið eða beint til sendiráðsins.
- Sími sendiráðsins er +86 10 6590 7795 og/eða + 86 10 6590 7796
- Tölvupóstfang er icemb.beijing@utn.stjr.is eða axel@mfa.is
Kínverska utanríkisráðuneytið hefur upplýst að ekki sé vitað til þess að erlendir ríkisborgarar séu á meðal slasaðra eftir jarðskjálftann í Sichuan.
Stjórnvöld sögðu ennfremur flugvöllinn í Chengdu hafa verið opnaðan aftur fyrir umferð. Sendiráðið mælir engu að síður með því að íslenskir ríkisborgarar á svæðinu athugi hjá viðkomandi flugfélögunum hvort flugumferð til og frá flugvellinum í Chengdu sé eðlileg áður en förinni er haldið áfram.
Sendiráð Íslands í Beijing mun áfram fylgjast með stöðu mála.

