Vegabréf
Vegabréf
Umsókn um íslenskt vegabréf
Skv. lögum frá 1. júní 1999 hefur aðeins Útlendingastofnun á Íslandi heimild til útgáfu vegabréfa til íslenskra ríkisborgara. Einnig féll niður heimild til að færa börn inn í vegabréf foreldra og þurfa börn þvi sérstök vegabréf. Hægt er að sækja um nýtt vegabréf í sendiráðum, fastanefndum og hjá ræðismönnum Íslands, að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:
1) Allir umsækjendur um vegabréf, þ.m.t. börn, verða að koma í eigin persónu á umsóknarstað og útfylla umsókn um vegabréf.
2) Þegar umsækjandi sækir um vegabréf þarf hann að hann hafa með sér eina góða ljósmynd af stærðinni 35 mm X 45 mm, eldra vegabréf og kvittun fyrir innborgun vegabréfsins, EUR 56,oo fyrir 18- 66 ára en EUR 21,oo fyrir aðra og tvöfalt gjald EUR 110,oo vegna hraðútgáfu, sem greiðist fyrirfram inn á bankareikning sendiráðsins:
COMMERZBANK BERLIN
BLZ 100 400 00 - KONTO NR. 266 1064
Vinsamlega munið að skrá fullt nafn greiðanda/vegabréfshafa á bankamillifærslublað.
3) Ef ekki er framvísað eldra vegabréfi þarf að sýna annars konar persónuskilríki með mynd.
4) Með umsókn um vegabréf fyrir barn undir 18 ára aldri skal leggja fram skriflegt samþykki þeirra sem fara með forsjá barnsins, staðfest ljósrit af fæðingarvottorði barnsins þar sem nöfn beggja foreldra koma fram og íslenska kennitölu barnsins sem gefin er af Hagstofa Íslands. - Ef móðir barnsins er erlendur ríkisborgari þarf einnig að senda staðfest ljósrit hjúskaparvottorðs.
5) Sendiráðin, fastanefndir og ræðismenn hafa einir heimild til að senda umsóknir til Útlendingastofnunar, sem síðan sendir nýja vegabréfið til baka á umsóknarstað.
6) Ef vegabréfi hefur verið stolið eða það hefur glatast á annan hátt verður lögregluskýrsla að fylgja umsókn um nýtt vegabréf, ásamt útfylltu sérstöku eyðublaði sem hægt er að fá á umsóknarstað.
7) Afgreiðslutími vegabréfa eru 10 virkir dagar eftir að umsókn berst til Útlendingastofnunar en síðan bætast við þeir dagar sem vegabréfið er í pósti frá Íslandi til umsóknarstaðar.
Vakin er sérstök athygli á því að reiturinn “sýnishorn undirskriftar einstaklings” verður að undirritast í viðurvist starfsmanns, sendiráðs, fastanefndar eða ræðismanns.
Sími Útlendingastofnunar v/vegabréfa 00 354 510 5400, fax: 00 354 510 5405 Sjá upplýs. á heimasíðu: www.utl.is netfang: utl@utl.is.
Sími Hagstofu Íslands,Þjóðskrá: 00 354 560 9850, fax: 00 354 562 3312
Sjá upplýsingar á www.hagstofa.is netfang: hagstofa@hagstofa.is
26. febrúar 2004.

