Um sendiráðið
Um sendiráðið

Sendiráðið Íslands í Þýskalandi var stofnað áí Hamborg árið 1952. Það fluttist til Bonn árið 1955 og svo til Berlínar árið 1999. Það hefur nú fyrirsvar fyrir Póllandi, Króatíu og Búlgaríu.
Starfsmenn eru 8 talsins þ.e. þrír útsendir; sendiherra, varamaður sendiherra, sendiráðsfulltrúi og fimm staðarráðnir; viðskiptafulltrúi, ritari sendiherra, ritari í innskráningu og skjalavörslu, ritari í mótttöku og bílstjóri.
Sendiráðið er staðsett í Tiergarten, á sendiráðssvæði Norðurlandanna og mótast starfið í sendiráðinu á samstarfinu við hin norrænu sendiráðin.
Alls starfa 12 heiðursræðismenn fyrir sendiráðið, þar af 10 í Þýskalandi.
Sem stendur er enginn ræðismaður í Króatíu
Meginhlutverk sendiráðsins er að hlúa að viðskiptalegum, menningarlegum og pólitískum tengslum Íslands við Þýskaland, Pólland, Króatíu og Búlgaríu svo og að veita Íslendingum í löndunum þjónustu og aðstoð.
Ólafur Davíðsson, sendiherra

