Vegabréf
Umsókn um íslenskt vegabréf og ökuskírteini

Vegabréf
Hægt er að sækja um íslensk vegabréf hjá sendiráðinu.
Opnunartími
Opnunartími sendiráðsins er 9-16 alla virka daga, en afgreiðslutími fyrir vegabréf er frá 10-12 alla virka daga, eða samkvæmt samkomulagi. Pannta ber tíma með a.m.k. dags fyrirvara. Umsækjendur þurfa að hafa í huga að frágangur umsóknar og myndataka getur tekið nokkra stund.
Þjónusta ræðismanna
Vakin er athygli á því að ræðismenn geta ekki lengur tekið við umsóknum um vegabréf.
Ræðismenn geta eftir sem áður haft milligöngu um útgáfu neyðarvegabréfa, ferðaskilríkja og framlengingu vegabréfa eftir því sem við á í sérstökum neyðartilfellum.
Ferlið
Umsækjendur verða að koma í eigin persónu til sendiráðsins þar sem lífkennamynd er tekin af viðkomandi á staðnum og er þar með óþarfi að koma með passamynd. Gjald er DKK 210 fyrir 18-66 ára en DKK 80 fyrir aðra og óskast greitt í reiðufé. Ekki er tekið við greiðslukortum.
Vegabréfin eru síðan útbúin á Íslandi og póstsend til umsækjanda innan fárra daga.
Vegabréf fyrir börn
Við vegabréfaumsóknir barna er þess krafist að báðir foreldrar eða forráðamenn komi í sendiráðið og veiti samþykki sitt fyrir umsókninni.
Ef annað forsjárforeldra barns getur ekki mætt skal hann/hún rita vottað samþykki sitt á þar til gert eyðublað og það skannað inn í kerfið. Ef minnsta óvissa er um forræði þess sem leggur fram umsókn um vegabréf barns skulu allar þar til greindar upplýsingar staðreyndar eftir fremsta megni.
Heimildin til að víkja frá því skilyrði að báðir forsjárforeldrar standi að umsókn um vegabréf hefur nú verið þrengd mjög. Eingöngu er heimilt að gefa út vegabréf samkvæmt umsókn annars forsjárforeldris þegar hitt forsjárforeldrið er ófært um að veita samþykki sitt vegna sjúkdóms, fjarvistar eða annarra sérstakra aðstæðna að undangenginni athugun á umræddum aðstæðum og mati á því hvort hætta sé á að barn verði fært úr landi með ólögmætum hætti. Fullyrðingar um að annað foreldrið sé erlendis þar sem ekki náist í það eru alls ekki fullnægjandi grundvöllur.
Sjá nánar á heimasíðunni www.vegabref.is.
Börn sem fædd eru erlendis þurfa að vera komin með kennitöluskráningu í íslensku þjóðskránni til þess að hægt sé að sækja um vegabréf fyrir þau. Hafi barnið ekki fengið útgefið vegabréf fyrr skal sýna fæðingarvottorð barnsins þegar sótt er um.
Nafnabreytingar
Ef umsækjendi hefur tekið upp nýtt eftirnafn eða breytt á einhvern hátt eftirnafni sínu þarf að vera búið að ganga frá tilkynningu um slíkt til þjóðskrár á Íslandi (www.thjodskra.is). Slíkt gerist ekki sjálfkrafa þó makar taki upp nafn hvors annars við hjónavígslu í Danmörku.
Umsóknir um endurnýjun ökuskírteinis
Hægt er að sækja um endurnýjun á íslensku ökuskírteini í sendiráðinu í Kaupmannahöfn.
Umsókninni þarf að fylgja svokallað kennispjald sem útvega þarf frá Ríkislögreglustjóra. Best er að hringja fyrirfram, gefa upp nafn og íslenska kennitölu og biðja sendiráðið að útvega kennispjaldið. Fylla þarf út umsókn í sendiráðinu, koma með eina mynd og greiða í reiðufé DKK 160 fyrir 18-66 ára og DKK 45 fyrir 67 ára og eldri.
Afgreiðslutími ökuskírteinis er um fjórar vikur.
Íslensk ökuskírteini eru gild í Danmörku.

