Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn, Danmörku
Strandgade 89, DK-1401 København K - Sími: +45-3318 1050
Strandgade 89, DK-1401 København K - Sími: +45-3318 1050

21. nóvember síðastliðinn var stofnað Íslenska viðskiptanetið í Danmörku. Um 90 fyrirtæki gerðust stofnaðilar að netinu. Formaður netsins var kosinn Vigdís Finnsdóttir. Á myndinni má sjá stjórn viðskiptanetsins, frá vinstri, Vigdísi Finnsdóttur, Rósu Viðarsdóttur og Kristínu Hjálmtýsdóttir.
>>>Haldin var kynningarfundur um ferðaþjónustu á Íslandi í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn þann 17.nóvember. Á fundinn mættu aðillar frá Ferðamálastofu, Útflutningsráði, Samtökum ferðaþjónustunnar og höfuðborgarstofu. Svavar Gestsson, sendiherra stjórnaði fundinum, en auk Árna Gunnarssonar formanns ferðaþjónustunnar töluðu Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri og Sif Gunnarsdóttir, forstöðumaður höfuðborgarstofu.
>>>Á myndinni eru sendiherra Íslands í Danmörku og ræðismaðurinn í Árósum ásamt þeim nemendum íþróttaskólans sem fengu stuðning frá nafnlausum manni sem lagði fram 150.000 DKK þar sem ella blasti við að nemendurnir yrðu að fara heim og hætta námi. Tekið skal fram að námið í íþróttaskólanum er ekki lánshæft.
- Sendiherra hefur nú lokið yfirferð um 5 borgir í Danmörku þar sem hann hefur haldið opna fundi með Íslendingum. Síðasti fundurinn var í Álaborg sl. þriðjudgskvöld.
Á sunnudaginn hélt Svavar Gestsson sendiherra fund í Horsens. Eins og sést á meðfylgjandi mynd þá var fundurinn fjölmennur en hann sóttu um 120 manns. Fundarmenn voru flestir frá Horsens en auk þeirra komu á staðinn Íslendingar frá Esbjerg, Árósum og Álaborg.
Reykjavik, Iceland – 24 October 2008– The Icelandic Government has reached an agreement ad referendum with a mission from the International Monetary Fund (IMF) on a comprehensive stabilisation program.
>>>
Sýningin ISLAND::FILM verður opnuð þann 1. nóvember á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn. Íslensk kvikmyndasaga frá 1904 til dagsins í dag er umfjöllunarefni sýningarinnar. Af því tilefni verða Bíódagar haustsins tileinkaðir Íslandi og verða þar sýndar myndirnar Mávahlátur (2001), 101 Reykjavík (2000), Börn náttúrunnar (1991) og Veðramót (2007).
>>>
Miðvikudaginn 22. október verður efnt til upplýsingafundar í Jónshúsi.
Svavar Gestsson sendiherra fer yfir það sem gerst hefur í efnahagsmálum á Íslandi að undanförnu.
Íslendingar í Danmörku eru sérstaklega boðaðir á fundinn en þar verður farið yfir hagsmuni þeirra almennt en jafnframt eru boðin viðtöl við einstaklinga sem eiga við sérstaka erfiðleika að stríða vegna efnahagssviftinganna að undanförnu og þurfa svör við spurningum.
Seðlabanki Íslands virkjaði í gær gjaldmiðlaskiptasamninga að fjárhæð 400 milljónir evra. Dregið hefur verið á gjaldmiðlaskiptasamninga sem gerðir voru við seðlabanka Danmerkur og Noregs, og nemur hvor ádráttur 200 milljónum evra.
Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur sett á fót nýtt samræmt þjónustu- og upplýsinganet vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði sem felur í sér nýtt vefsvæði, grænt símanúmer, fyrirspurnalínu og netspjall.
Á hinu nýja þjónustuneti er að finna tengingar og helstu upplýsingar um stöðu mála og margvíslega upplýsingaþjónustu og ráðgjöf sem í boði er á vettvangi ráðuneyta og stofnana vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði. Jafnframt er þar að finna upplýsingar um aðra aðila sem veita margvíslega ráðgjöf og þjónustu sem nýst getur almenningi.
Grænt símanúmer ráðuneytisins er einungis nothæft innanlands og bendum við því borgurum sem hringja frá Danmörku á símanúmerið 00 354 545 9900. Þaðan má fá beint samband við velferðarstofnanir sem veita upplýsingar vegna:
Sjá nánar á heimasíðu Félags- og tryggingamálaráðuneytis, http://www.felagsmalaraduneyti.is/upplysingar/.
Nýi bankinn tekur yfir innlendar eignir Landsbankans til þess að tryggja eðlilega bankastarfsemi og öryggi innstæðna á Íslandi. Alþjóðleg starfsemi Landsbankans er skilin frá. Öll útibú, þjónustuver, hraðbankar og netbanki Landsbankans verða opin.
Á grundvelli nýsettra laga grípur Fjármáleftirlitið inn í rekstur Glitnis til að tryggja áframhaldandi viðskiptabankastarfsemi á Íslandi
Í tilkynningu frá Seðlabankanum segir, að gengi krónunnar hafi fallið mikið undanfarnar vikur og sé orðið mun lægra en samrýmist jafnvægi í þjóðarbúskapnum. Gripið verði til aðgerða til þess að styðja hækkun gengisins á ný og koma á stöðugleika í gengis- og verðlagsmálum.
Fjármálaeftirlitið hefur ákveðið að nýta heimild Alþingis með vísan til laga nr. 125/2008, um sérstakar aðstæður á fjármálamarkaði, sem samþykkt voru á Alþingi í gærkvöldi.
>>>
Fimm kvikmyndir eru tilnefndar til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs, og er mynd Baltasar Kormáks, Brúðguminn, ein þeirra.
Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn og Magasin du Nord bjóða til sýningarinnar Abstract Buddha Abstract í Kong Hans Salen, jarðhæð Magasin við Kongens Nytorv.
Sýningin opnar 10. október kl. 17 og er opin á opnunartíma Magasin. Sýningunni lýkur 25. október.
>>>
Innrás sunnlenska bjórsins Skjálfta á danskan markað hefst nú í september.
Ölvisholt Brugghús framleiðir bjórinn sem verður seldur í samvinnu við GourmetBryggeri. Af þessu tilefni stendur viðskiptaþjónusta sendiráðsins í Kaupmannahöfn fyrir móttöku í sendiráðinu þann 11. september.
Sýning á verkum Helga Þorgils Friðjónssonar myndlistarmanns verður opnuð í Bryggjusalnum niðri á jarðhæðinni föstudaginn 5. september.
Á sýningunni eru mestmegnis ný málverk auk portrettmynda. Myndefnið sækir listamaðurinn að vanda í náttúruna, þareru fiskar, fuglar og svo maðurinn sjálfur.
>>>Tónlistarmaðurinn Mugison og hljómsveitin Bloodgroup spila á Roskilde í ár. Hátíðin hefur áður skartað íslenskum nöfnum, en eins og allir vita opnaði Björk hátíðina á Orange Scene árið 2007.

Verk Ólafs Elíassonar, New York City Waterfalls, verður opnað í New York í dag. Verkið samanstendur af fjórum fossum sem settir hafa verið upp í höfnum New York borgar. Meira má lesa um atburðinn í netútgáfu Politiken í dag og í The New York Times.
>>>
Íslenski kvennakórinn í Kaupmannahöfn hélt tónleika fyrir fullu húsi í nýja sendiherrabústaðnum á Freðriksbergi, þann 7. júní síðastliðinn. Guðrún Ágústsdóttir, kona sendiherrans, tók vel á móti hópnum, sem er fyrsti kórinn sem heldur tónleika í þessum mjög svo skemmtilega sal, sem áður var sundlaug. Þótti hljómburður góður og tónleikarnir vel heppnaðir í alla staði.
Boðið var upp á léttar veitingar utandyra eftir tónleikana, í blómum skrýddum garðinum. Flytjendur og gestir báru að því góðan róm að spjalla í svo fallegu umhverfi.
Meðfylgjandi mynd sýnir, meðal annars, formann Íslenska kvennakórsins, Guðrúnu Snorradóttur, afhenda nöfnu sinni Ágústsdóttur gjöf fyrir hönd kórsins.
Íslenski Kvennakórinn í Kaupmannahöfn heldur tónleika í nýja sendiherrabústaðnum, laugardaginn 7. júní kl. 15:00.
>>>
Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn og Dansk íslenska verslunarráðið efndu til fundar á Bryggjunni miðvikudaginn 21. maí þar sem fjallað var um íslenskt efnahagslíf. Fundurinn tókst mjög vel, fundarsókn var góð og fyrirlesarar skiluðu sínu verki af stakri prýði.