Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn, Danmörku

Strandgade 89, DK-1401 København K - Sími: +45-3318 1050



Fréttir/viðburðir


Upplýsingamiðstöð fyrir almenning, fyrirtæki og fjölmiðla

14.10.2008

Vegna þeirra erfiðleika sem nú ríkja í íslensku fjármálalífi hafa íslensk stjórnvöld ákveðið að opna upplýsingamiðstöð fyrir almenning, fyrirtæki og fjölmiðla, innanlands sem utan.

Miðstöðinni er ætlað að taka á móti fyrirspurnum í síma eða með tölvupósti sem beint er til íslenskra stjórnvalda og varða þær aðstæður sem nú ríkja. Miðstöðin tekur á móti fyrirspurnum og ýmist svarar þeim eða vísar þeim til viðeigandi stofnana.

Fjölmiðlamiðstöðin, sem sett var upp á dögunum og starfað hefur í Miðbæjarskólanum, mun starfa áfram meðan þörf krefur og verður fyrirspurnum fjölmiðla beint þangað. Þjónustu- og upplýsinganet, sem rekið hefur verið af félags- og tryggingamálaráðuneytinu verður rekið áfram, samtengt upplýsingamiðstöðinni, á vefslóðinni: felagsmalaraduneyti.is/upplysingar.

Hægt er að ná sambandi við upplýsingamiðstöðina í síma 00 354 545 8950 milli 8 og 22 alla virka daga. Einnig er hægt að beina fyrirspurnum til miðstöðvarinnar í tölvupósti á netfangið: midstod@mfa.is.



 

 

Tölvupóstur:


Fax:

+45-33 18 10 59


Opnunartími:

Mán-fös
09:00 - 16:00


Tungumál:

Íslenska, danska, enska