Um sendiráðið
Um sendiráðið

Sendiráðið veitir fyrirsvar gagnvart Danmörku (þ.m.t. Færeyjar og Grænland).
Sendiráðið í Kaupmannahöfn er jafnframt sendiráð Íslands gagnvart Ísrael, Rúmeníu, Slóveníu og Tyrklandi. Samtals eru 20 heiðursræðismenn í framangreindum löndum.
Í Kaupmannahöfn eru 16 erlend sendiráð sem jafnframt eru sendiráð gagnvart Íslandi.
Staðsetning sendiráðsins:
Sendiráðið er til húsa í Strandgade 89, húsi Norðurbryggju á Kristjánshöfn.
Metro: Christianshavns Torv.
Strætisvagnar: Leiðir 2A, 19, 48 eða 350.
Hafnarbáturinn: Linie 901 og fara út við Knippelsbro.
DFDS kanalbátarnir yfir sumartímann.
Bílastæði eru á torginu fyrir framan bygginguna (gjaldtaka). Miðasjálfsali er við Byggingu A, rétt þegar komið er inná torgið.


