Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn, Danmörku

Strandgade 89, DK-1401 København K - Sími: +45-3318 1050



Viðskiptaþjónusta utanríkisráðun.

Viðskiptaþjónusta utanríkisráðuneytisins

Útflutningsráð og Viðskiptaþjónusta utanríkisráðuneytisins vinna nú saman og bjóða öfluga ráðgjafaþjónustu fyrir útflytjendur. Fjölmörg íslensk fyrirtæki hafa á undanförnum árum nýtt sér þjónustu ráðgjafa Útflutningsráðs og viðskiptafulltrúa í sendiráðum Íslands erlendis.

Í ljósi vaxandi eftirspurnar eftir aðstoð Viðskiptaþjónustunnar og sendráðs Íslands í Danmörku, var staða viðskiptafulltrúa endurvakin við sendiráðið sumarið 2004. Sú ráðstöfun er samstarfsverkefni Viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins, Útflutningsráðs Íslands og Dansk-íslenska verslunarráðsins.

Viðskiptaþjónustan er fjölbreytt og tengslanet þess í Danmörku vex dag frá degi. Með því að sameina krafta utanríkisráðuneytisins, Útflutningsráðs og Dansk-íslenska verslunarráðsins standa vonir til þess að íslensk útrásarfyrirtæki nái enn betri fótfestu í Skandinavíu og að slík fótfesta verði þeim hvatning til enn frekari landvinninga.