30. Alþjóðaráðstefna Rauða krossins
30. Alþjóðaráðstefna Rauða kross hreyfingarinnar fer þessa dagana fram í Genf
Ráðstefnur þessar eru alla jafna haldnar á 4ra ára fresti.
Yfirskrift ráðstefnunnar er að þessu sinni "Saman fyrir mannkynið" og er megináhersla lögð á fjóra þætti:
- Hlutverk landsfélaga Rauða krossins um heim allan sem stoðaðili ríkisstjórna við hjálparstörf og neyðarhjálp vegna náttúruhamfara,
- Aukið og stöðugt mikilvægi Alþjóðamannúðarlaga (International Humanitarian Law - IHL) og kynning á þeim,
- Loftlagsbreytingarnar og áhrif þeirra
- Og fólksflutningar.
Íslensk stjórnvöld og Rauði kross Íslands undirrituðu í dag í Genf sameiginleg áheiti um aukið samstarf og kynningu á Alþjóðamannúðarlögum.
Þá undirrituðu fulltrúar allra Norðurlandanna ásamt fulltrúum landsfélaga Rauða krossins á Norðurlöndum áheiti um að gæta hlutleysis við mannúðaraðstoð.
Kristinn F. Árnason, sendiherra og fastafulltrúi Íslands í Genf, flutti í gær ávarp íslenskra stjórnvalda og er það hjálagt.






