Opnun ræðisskrifstofu Íslands í Vilníus
Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, opnaði formlega nýja ræðisskrifstofu Íslands í Vilníus, höfuðborg Litháen, 30. nóvember síðastliðinn. Ræðisskrifstofan er til húsa í aðalstöðvum hátæknifyrirtækisins Hnit-Baltic Geoinfoservisas í Vilníus, en nýr kjörræðismaður Íslands í Litháen, Vaidotas Sankalas, verkfræðingur er jafnframt einn stofnenda fyrirtækisins árið 1993. Fyrirtækið var stofnað í samstarfi við íslensku verkfræðistofuna Hnit hf.
Vaidotas Sankalas hefur haft margvísleg samskipti við Ísland á þeim 13 árum sem verkfræðistofan Hnit hefur starfað með honum að rekstri Hnit-Baltic Geoinfoservisas í Litháen.


