Sendiráð Íslands í París, Frakklandi

8, avenue Kléber, 75116 Paris - Sími: +33-01 44 17 32 85



Íslendingar í Frakklandi

Íslendingar í Frakklandi

Hér eru ýmsar upplýsingar um dvöl í Frakklandi.

Sendiráð Íslands í París leggur lið bæði þeim Íslendingum sem búsettir eru í umdæmislöndunum, námsmönnum og ferðamönnum. Aðstoð sendiráðsins getur verið með ýmsum hætti. Algengast er að fólk leiti til sendiráðsins vegna útgáfu vegabréfa, neyðar-vegabréfa, ökuskírteina o.þ.h.

Það skal tekið fram að sendiráðið veitir enga fjárhagsaðstoð af nokkru tagi.

1. Dvalarleyfi
Íslenskir ríkisborgarar þurfa ekki lengur dvalarleyfi. Nægir að framvísa vegabréfi gagnvart atvinnuveitendum og öðrum þeim sem óska eftir staðfestingu á leyfi til dvalar í landinu. Vísað er eftirfarandi lagagrein Loi_2006-911_du_24_juillet_2006_-_dvalarleyfi

Sjá nánar tilkynningu frá préfecture de police, dags. 23. nóvember 2003, og upplýsingasíðuna service-public.fr - actifs (launþegar og atvinnurekendur) eða  service-public.fr - inactifs (ellilífeyrisþegar, nemar  og atvinnulausir)

Bráðlega verður gerð krafa þess efnis að ríkisborgarar Evrópusambandssins og evrópska efnahagssvæðisins (sem Ísland er aðili að), skrái búsetu í Frakklandi í ráðhúsi (mairie) viðkomandi borgar eða bæjar, innan þriggja mánaða eftir komuna til Frakklands.  Þetta gildir um þá sem setjast að í Frakklandi eftir að tilskipun ("arrêté") þessa efnis verður gefin út.

Íslendingar geta eftir sem áður sótt um dvalarleyfi hjá Préfecture de police, sé þess óskað. Benda má á að almenningi er skylt að ganga með persónuskilríki á sér í Frakklandi og flokkast einungis vegabréf og dvalarleyfi sem gild persónuskilríki fyrir íslenska ríkisborgara.  Atvinnulausir, ellilífeyrisþegar og nemar þurfa þó að uppfylla ákveðin skilyrði (sjá ofar).

2. Stofnun bankareiknings

Til að stofna bankareikning í Frakklandi þar viðkomandi að vera með fast heimilisfang í Frakklandi.

  • Vegabréf eða carte de séjour
  • Staðfesting á heimilisfangi/justificatif de domicile

    og eftir atvikum:
  • Staðfesting á föstum tekjum (launaseðill, LÍN, skuldbinding foreldra.


3. Húsnæði

Æskilegt er að ætla sér rúman tíma til að leita að húsnæði því framboð er lítið, sérstaklega í París. Best er að vera á staðnum en mælt er með því að kynna sér markaðinn fyrirfram, t.d. á netinu.

Beðið er um eftirfarandi skjöl við undirskrift leigusamnings:

  • Staðfesting á föstum tekjum
  • Staðfesting á bankareikn (RIB)
  • Innbústrygging (hægt að fá í bönkum eða hjá tryggingarfélagi)
  • Greiða þarf í flestum tilvikum allt að þrjá mán. fyrirfram
  • Oftast er beðið um ábyrgðarmenn
  • Námsmenn geta sótt um húsaleigubætur


Hjálagt eru nokkrar slóðir á fasteignasölur sem geta hjálpað til við leit að íbúð:

  • fnaim.fr

    Fyrir stúdenta: Cnous (Crous)

    4. Vegabréf

    Frá og með 17. maí 2006 er ekki hægt að sækja um íslensk vegabréf hjá sendiráði Íslands í París. Frá október 2006 er hægt að sækja um vegabréf í sendiráðum Íslands í Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, Osló, Lundúnum, Berlín og Washington DC. Ræðismenn í umdæmi sendiráðsins taka ekki lengur við almenum vegabréfsumsóknum. Önnur sendiráð og ræðismenn geta hins vegar framlengt vegabréf um eitt ár frá þeim degi sem gildistíma vegabréfs lauk. Í brýnustu neyð geta önnur sendiráð og ræðismenn gefið út neyðarvegabréf. Neyðarvegabréf eru einungis gefin út ef umsækjandi getur ekki sótt vegabréf í ofantöldum sendiráðum eða á Íslandi. Taka skal fram að neyðarvegabréf eru ekki ákjósanleg ferðaskilríki.

Skilríki sem Íslendingur skal hafa meðferðis á ferðum innan Evrópu


5. Ökuskírteini

Íslensk ökuskírteini:

Hægt er að sækja um nýtt ökuskírteini hjá sendiráði Íslands.
Viðkomandi kemur í sendiráðið í eigin persónu og fyllir út umsóknareyðublað

  • Ein passamynd
  • Sendiráðið sendir umsóknina til Ríkislögreglustjóra sem sendir svo skírteinið beint til viðkomandi
  • Ökuskírteini kostar 3500 íkr. eða ca. 40 Evrur
  • Hægt er að láta þýða íslenska skírteinið á frönsku og kostar sú þýðing 10 Evrur


Frönsk ökuskírteini:

Íslendingar búsettir í Frakklandi geta óskað eftir að skipta íslensku ökuskírteini yfir í franskt ökuskírteini. Sýslumannsembættin (préfecture) eða aðallögreglustöðin í París (Préfecture de police) annast afgreiðslu. Frönsk yfirvöld geta krafist þess að íslensku skírteini sé skipt yfir í franskt ökuskírteini ef um brot á umferðalögum í Frakklandi er að ræða. Ef upprunaland ökuskírteinis er utan E.E.S. ber að skipta því yfir í franskt ökuskírteini eigi síðar en einu ári eftir komudag. Nánar um afgreiðslu fransks ökuskírteinis: www.service-public.fr


6. Atvinnuleysisbætur

Íslendingar á atvinnuleysisbótum á Íslandi sem flytja til Frakklands eiga rétt á atvinnuleysisbótum í Frakklandi. Skilyrði er að framvísa eyðublaði E303 innan 7 daga frá komu til Frakklands hjá ASSEDIC. Til að fá heimilisfang ASSEDIC sem tilheyrir dvalarstað viðkomandi, þarf að hringja í upplýsingamiðstöð ASSEDIC í Frakklandi í síma 0811 01 01 75. Heimilsfang miðstöðvar er:

ASSEDIC DE PARIS
4, rue Travesière,
75012 PARIS
Sími 0 811 01 01 75 / 01 44 89 50 00

Síðan þarf að snúa sér til næstu skrifstofu ANPE sem aðstoðar atvinnulausa við leit að nýrri atvinnu.



7. Íslenski skólinn

Markmið skólans eru að gefa íslenskum börnum í París og nágrenni tækifæri til að eiga samskipti á íslensku, að læra að lesa og skrifa á íslensku með hliðsjón af grundvallaratriðum íslenskrar málfræði og að kynnast íslenskri sögu og menningu. Kennslustundir eru annan hvorn sunnudagsmorgun, tvo tíma í senn. Vinsamlegast hafið samband við skólastjóra til að fá nánari upplýsingar: Einar Einarsson.


8. Skráning íslenskra barna sem eru fædd í Frakklandi

Börn íslenska foreldra fædd í Frakklandi eða börn fædd í blönduðu hjónabandi þarf að skrá á næstu borgarskrifstofu (La Mairie) innan við 72 tíma eftir fæðingu. Ef barn fæðist á miðvikudegi, fimmtudegi eða á föstudegi, er síðasti skráningardagur mánudagur. Viðkomandi fær franskt fæðingarvottorð á fæðingarheimilinu og barninu er strax gefið nafn.

Upplýsingar um skráningu barns í íslenska þjóðskrá: http://www.thjodskra.is/thjonusta/skraning_barns/

Athygli skal vakin á því að sækja þarf um ríkisborgararétt fyrir barn íslensks föður og erlendrar móður sem ekki eru í hjónabandi, á þar til gerðu eyðublaði hjá dómsmálaráðuneyti. 


9. Gifting Íslendinga í Frakklandi

Íslendingar sem vilja gifta sig í Frakklandi þurfa:

  • Að hafa haft lögheimili í Frakklandi í að minnsta kosti 3 mánuði fyrir giftingu (Hóteldvöl telst ekki gild)
  • Frumrit að fæðingarvottorði sem fæst hjá Hagstofu Íslands
  • Staðfesting á heimilisfangi (t.d. leigusamningur, síma- eða rafmagnsreikningur)
  • Staðfesting á að viðkomandi sé ógiftur - fæst hjá Hagstofu Íslands (certificat de célibataire)
  • Staðfesting á að viðkomandi sé leyfilegt að gifta sig samkvæmt íslenskum lögum - fæst hjá sendiráðinu (certificat de coutume)
  • Gild skilríki (vegabréf, dvalarleyfi)
  • Nöfn á vottum og öll ofangreind vottorð mega ekki vera eldri en 2ja mánaða.


10. EES

EES-samningurinn kveður á um frjáls vöru- og þjónustuviðskipti, frjálsa fjármagnsflutninga og sameiginlegan vinnumarkað á EES-svæðinu. Samningurinn kveður einnig á um samvinnu EES-ríkjanna á sviði félagsmála, jafnrétttismála, neytendamála, umhverfismála, menntamála, vísinda- og tæknimála o.fl. Sjá nánar: www.ees.is


11. Tenglar

Smellið hér til að færast á tenglasíðuna



 

 

Tölvupóstur:


Faxnúmer:

01 40 67 99 96


Opnunartími:

Mán-fim:
09.30-13.00 &
14.00-17.00


Tungumál:

Íslenska, franska, enska, ítalska, spænska.


 

Leturstærð: