Um sendiráðið
Um sendiráðið
Sendiráð Íslands í París var opnað þann 10. janúar árið 1946. Sendiráðið þjónar Frakklandi og fimm öðrum ríkjum, þ.e. Alsír, Andorra, Ítalíu, Marokkó, Portúgal, San Marínó, Spáni og Túnis.
Sendiráðið er jafnframt fastanefnd Íslands gagnvart Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD) og Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO).
Hlutverk sendiráðsins er að veita þjónustu við Íslendinga í umdæmisríkjunum og gæta hagsmuna Íslands, einkum á sviði utanríkis-, viðskipta- og menningamála.
Sendiráðið er staðsett á Avenue Kléber nr. 8, nærri Sigurboganum (Arc de Triomphe - Place de L'Étoile) í 16. hverfi Parísar. Neðanjarðarlestarstöðin Kléber á línu 6 er beint fyrir utan sendiráðið, en stöðin hjá Sigurboganum (Charles-de-Gaulle-Étoile) á línu 1, 2, 6 og RER-A er einnig í göngufæri.
Vefsetur almenningssamgangna í París.



