Viðskiptaþjónusta
Viðskiptaþjónusta sendiráðs Íslands á Indlandi
Meginverkefni sendiráðs Íslands í Nýju Delí er að vinna að frekari eflingu viðskiptasamstarfs Íslands og Indlands, með aukinni staðarþekkingu og uppbyggingu tengslanets í indversku viðskipta- og stjórnmálalífi. Það starf er einkum þríþætt:
-
Styrking lagalegs ramma viðskipta ríkjanna, s.s. með því að ýta á eftir gerð fjárfestingasamnings, tvísköttunarsamnings og mögulegs fríverslunarsamnings á milli Íslands og Indlands.
-
Aðstoð við og kynning á íslenskum atvinnugreinum sem hyggja á viðskipti við Indland. Samstarf við íslensk og indversk hagsmunasamtök í einstökum geirum, s.s. sjávarútvegi, orku, fjárfestingum, lyfjaiðnaði, ferðamennsku o.fl.
-
Almenn þjónusta og bein aðstoð við íslensk fyrirtæki sem hyggja á viðskipti við Indland. Meðal þjónustu sendiráðsins má nefna skrifstofuaðstöðu, tengslamyndun, markaðsrannsóknir, milligöngu um áreiðanleikakannanir, upplýsingamiðlun um stofnun fyrirtækja og regluverk varðandi viðskipti á Indlandi.
Helstu hagsmunasamtök Indlands á sviði viðskipta eru á meðal samstarfsaðila sendiráðsins, þ. á m.:
-
Confederation of Indian Industries (CII)
-
Federation of Indian Industry and Commerce (FICCI)
-
National Association of Software&Service Companies (NASSCOM).
Staðarráðinn viðskiptafulltrúi sendiráðsins, hr. Anshul Jain, er hluti af viðskiptafulltrúakerfi Viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins (VUR).
Hafið óhikað samband ef þið hafið spurningar um hvaða viðskiptaþjónustu sendiráðið veitir.


