Viðskipti á Indlandi
Viðskipti á Indlandi
Ýmis íslensk fyrirtæki eiga þegar í viðskiptum á Indlandi, s.s. Actavis, Sæplast og Eskimó módels. Erlend og alþjóðleg fyrirtæki hafa undanfarin ár gefið Indlandi aukin gaum sem fjárfestinga- og viðskiptamöguleika, eins og lesa má úr tölum um stóraukna erlenda fjárfestingu erlendra aðila á Indlandi. Hagvöxtur á Indlandi er áætlaður um 8% á árinu 2006 og endurspeglar hann þá gríðarlegu efnahagslegu uppbyggingu sem staðið hefur yfir og framundan er á Indlandi, næst fjölmennasta ríki heims.
Íslenskum aðilum sem hafa hug á viðskiptum við eða á Indlandi er bent að hafa samband við sendiráðið sem veitir margvíslega viðskiptaþjónustu í því tilliti, t.d. með gerð markaðsyfirlita, aðstoð við tengslamyndun á Indlandi, ráðgjöf um regluverk indverskra stjórnvalda og margt fleira.
Markmið sendiráðs Ísalnds á Indlandi er að nýta þann pólitíska velvilja sem ríkir milli Íslands og Indlands til að ýta undir raunsanna efnahags- og viðskiptasamvinnu fyrirtækja, stofnana og einkaaðila.


