Fastanefnd Íslands í Róm, Ítalíu

Via di San Saba, no. 12, int. 7. 00153 Roma - Tel: +39 06 5725 0509


Tungumál


Velkomin á vef fastanefndar Íslands í Róm

Fastanefnd Íslands í Róm hefur fyrirsvar af hálfu íslenskra stjórnvalda gagnvart stofnunum Sameinuðu þjóðanna þar í borg, sem eru Matvæla- og landbúnaðarstofun Sameinuðu þjóðanna (Food and Agriculture Organization of the United Nations, FAO), Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (World Food Programme, WFP) og Alþjóðasjóður um þróun landbúnaðar (International Fund for Agricultural Development, IFAD). Markmið þessara stofnana er að tryggja fæðuöryggi allra jarðarbúa.

Fastanefndin gegnir einnig hlutverki sendiráðs gagnvart Ítalíu.

 

Fréttir og ræður

DSC_9821

4.6.2008 : Fundur utanríkisráðherra Íslands og Ítalíu

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og Franco Frattini, utanríkisráðherra Ítalíu ræddu m.a. mikilvægi þess að fullgilda tvísköttunarsamning landanna á fundi sem þau áttu í Róm í dag. Kvaðst Frattini myndu beita sér fyrir fullgildingu samningsins en Íslendingar hafa þegar fullgilt hann. >>>
 
Frú Moratti og Grétar Már Sigurðsson

28.5.2008 : Viðskipta- og fjárfestingakynning í Mílanó, hinn 26. maí 2008

Hátt í hundrað manns sátu íslenska viðskipta- og fjárfestingakynningu í ráðhúsi Mílanóborgar, Palazzo Marino, hinn 26. maí sl., sem skipulögð var af sendiráði Íslands í Róm og Íslensk-ítalska viðskiptaráðinu (IICC) í samvinnu við ýmsar stofnanir og fyrirtæki, þ. m. t. Mílanóborg og viðskiptaráðið í Mílanó. Borgarstjórinn í Mílanó, frú Letizia Moratti, ávarpaði fundinn, og Grétar Már Sigurðsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins fyrir hönd íslenskra stjórnvalda. >>>
 

15.5.2008 : Íslenskar stuttmyndir sýnar í Róm

Stuttmynda- og heimildamyndahátíðin TekFestival fór fram í Róm nýverið. Á henni voru meðal annars sýndar tvær íslenskar myndir, 'Anna and the moods' eftir Gunnar Karlsson og 'Wrestling' eftir Grím Hákonarson. >>>
 
WFP - UN World Food Programme

5.5.2008 : Íslensk stjórnvöld gefa hálfa milljón dollara til WFP í kjölfar neyðarkalls stofnunarinnar

Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið aukaframlag til Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) sem nemur um hálfri milljón Bandaríkjadala, eða um 37 milljónum ísl. kr. í kjölfar neyðarkalls stofnunarinnar. Á Matvælaátætlun SÞ í alvarlegum fjárhagserfiðleikum vegna gífurlegra hækkana sem orðið hafa á matvæla- og eldsneytisverði að undanförnu. >>>
 

 

Tölvupóstur:


Fax:

+39 06 575 8012


Opnunartími:

Mánudaga-föstudaga
09:00 - 16:00


Tungumál:

Enska, ítalska, íslenska.


 

Leturstærð: