Sendiráð Íslands - Tókíó, Japan

4-18-26, Takanawa, Minato-ku, Tokyo 108-0074, Tel: +81 (03) 3447-1944



Fréttir og tilkynningar


IFC

Menningarkvöld í sendiráðinu

Hópur gesta frá International Friendship Center heimsótti sendiráðið og tók þátt í menningarkvöldi.

31.1.2007

Föstudaginn 26. janúar heimsóttu sendiráðið félagasamtök sem heita International Friendship Center. Samtökin sem hafa að leiðarljósi að kynna félögum sínum menningu annarra þjóða óskuðu eftir að fá að koma í heimsókn og kynnast Íslandi. Um 45 manns heimsóttu sendiráðið og eyddu kvöldstund með starfsmönnum sendiráðsins og Íslendingum sem stunda nám í Tókýó.  Boðið var upp á mat úr íslensku hráefni, þorsk, skyr og vatn og var mikil ánægja með matinn.  Sendiherra, Þórður Ægir Óskarsson, ávarpaði hópinn og bauð gesti velkomna og Benedikt Höskuldsson, sendifulltrúi, hélt stutt ávarp þar sem kynnt var saga landsins og helstu kostir fyrir ferðamenn sem sækja Ísland heim.



 

 


Fax:

(03) 3447-1945


Opnunartími:

Mán-fös
09:00 - 17:00


Tungumál:

Japanska, enska, íslenska, danska, þýska.


 

Leturstærð: