Sendiráð Íslands - Tókíó, Japan

4-18-26, Takanawa, Minato-ku, Tokyo 108-0074, Tel: +81 (03) 3447-1944



Fréttir og tilkynningar


yomiuri3

Íslandskynning í sendiráðinu 15. febrúar sl.

50 gestir frá Yomiuri menningarmiðstöðinni í Yokohama sóttu sendiráðið heim 15. febrúar sl. til að fræðast um Ísland.

26.2.2007

Dagskráin hófst með því að sendiherra og frú, sem skartaði þjóðbúningi sem var kynntur sérstaklega í tilefni dagsins, buðu gestina velkomna. Að því loknu hélt starfsmaður sendiráðsins fyrirlestur um Ísland á japönsku.  Að honum loknum var gestum boðið upp á íslenskan mat, s.s. pönnukökur og skyr sem var flutt sérstaklega til Japans af þessu tilefni.  Meirihluti gestanna lét vel af skyrinu og kvaðst myndi kaupa það ef það yrði selt í japönskum matvöruverslunum.



 

 


Fax:

(03) 3447-1945


Opnunartími:

Mán-fös
09:00 - 17:00


Tungumál:

Japanska, enska, íslenska, danska, þýska.


 

Leturstærð: