Sendiráð Íslands - Tókíó, Japan

4-18-26, Takanawa, Minato-ku, Tokyo 108-0074, Tel: +81 (03) 3447-1944



Íslendingar í Japan

Íslendingar í Japan

Sendiráð Íslands í Tókýó leggur lið þeim Íslendingum sem búsettir eru í umdæmislöndunum, námsmönnum og ferðamönnum. Aðstoð sendiráðsins getur verið með ýmsum hætti. Algengast er að fólk leiti til sendiráðsins vegna útgáfu neyðarvegabréfa, ökuskírteina og ýmissa vottorða.

Að jafnaði dvelja u.þ.b. 60 Íslendingar í Japan og hefur þeim fjölgað mjög á síðustu árum. Koma þar einkum til tíð nemendaskipti á milli íslenskra og japanskra háskóla.

Í Japan er starfrækt Félag Íslendinga í Japan, FÍJ og heldur það reglulega líflegar samkomur. Nánari upplýsingar um starfsemi félagsins má nálgast á heimasíðu þess.




 

 

Leturstærð: