Utanríkisráðherrafundur í Brussel
Geir H. Haarde, utanríkisráðherra, sat utanríkisráðherrafund Norður- Atlantshafsbandalagsins í Brussel 8. desember 2005. Á fundinum ræddu ráðherrarnir undirbúning leiðtogafundar bandalagsins á næsta ári þar sem fjallað verður um árangur og næstu skref til að bregðast við nýjum aðstæðum í öryggismálum. Þeir áréttuðu mikilvægi NATO fyrir sameiginlegar varnir og sem samráðsvettvangs Evrópu og Norður-Ameríku um öryggismál og ítrekuðu nauðsyn aukins samstarfs við aðrar alþjóðastofnanir, einkum Sameinuðu þjóðirnar og
Evrópusambandið.
Einnig voru haldnir fundir í samstarfsráði bandalagsins með Rússlandi, í samstarfsnefnd bandalagsins með Úkraínu og í Evró-Atlantshafssamstarfsráðinu.
Kvöldið fyrir utanríkisráðherrafundinn sat Geir H. Haarde kvöldverðarfund utanríkisráðherra frá ríkjum Atlantshafsbandalagsins og Evrópusambandsins sem haldinn var til að styrkja Atlantshafstengsl Evrópu og Norður-Ameríku.
Nánari upplýsingar um ofangreindan fund er að finna á heimasíðu Norður-Atlantshafsbandalagsins, þ.á m. yfirlýsingu fundanna og á heimasíðu utanríkisráðuneytisins.





