Kór Öldutúnsskóla í Hafnarfirði heldur tónleika í Osló
Kór Öldutúnsskóla mun halda tónleika í Nordbergkirkju sunnudaginn 13.maí kl. 17.00. Sérstakir gestir á tónleikunum verða Barnakór Bölerskóla.
Stjórnendur á tónleikunum er Brynhildur Auðbjargardóttir og Vigdis Oftung.
Aðgangur er ókeypis.
Kór Öldutúnsskóla var stofnaður 1965. Stofnandi hans og stjórnandi til 2005 var Egill Friðleifsson. Undir hans stjórn hefur kórinn sungið víða um heim og tekið þátt í kóramótum og kórakeppnum. Egill er frumkvöðull í barnakórastarfi á Íslandi.
Brynhildur Auðbjargardóttir stjórnaði Íslendingakórnum í Ósló í 8 ár. Þetta er fyrsta utanlandsferð hennar með kórinn.



