Islands Ambassade - Oslo, Norge

Stortingsgata 30, 0244 Oslo, Tel: +(47) 2323-7530



Nyheter og meldinger


SÖNGUR OG SÖGUR

1.6.2007

Sumarbúðir sem kallast Söngur og Sögur eru ætlaðar börnum 6–12 ára sem búa erlendis og eiga a.m.k annað foreldrið íslenskt og tala íslensku nógu vel til að njóta dagskrárinnar.

Áhersla verður lögð á að kynna börnunum ýmsa þætti íslenskrar menningar t.d. íslensk þjóðlög og skemmtileg nútímalög við leiðsögn Hilmars Arnar Agnarssonar   organista sem og íslenskar þjóðsögur og ævintýri. Börnin verða leidd inn í heim íslenskra jurta og þau munu elda þjóðlega rétti með aðstoð matreiðslufólks í Skálholti. Einnig heimsækir hópurinn  bændabýlið í Skálholti og kynnist störfum þar og  fer í sögugöngu um Skálholtsstað.

Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir veitir námskeiðinu forstöðu. Námskeiðið hefst á mánudegi kl. 15.00 og því lýkur kl. 15.00 fimmtudaginn 19. júlí. Það kostar 22.000.- kr. Innritun og allar nánari upplýsingar í Skálholtsskóla í síma 486 8870 eða með netfanginu: rektor@skalholt.is



 

 

Postadresse:

Islands Ambassade 0244 Oslo


E-mail:


Fax:

+(47) 2283 0704


Åpningstider:

Mandag-fredag
09:00 - 16:00


Språk:

Islandsk, norsk, engelsk, tysk, fransk.


 

Leturstærð: