Sendiráð Íslands - Osló, Noregi

Stortingsgata 30, 0244 Oslo, Tel: +(47) 2323-7530



Íslendingar í Noregi

Íslendingar í Noregi

Vegabréfsáritanir

Á vefsetri utanríkisráðuneytisins er að finna upplýsingar um vegabréfsáritanir sem Íslendingar þurfa vegna ferðalaga til einstakra landa svo og upplýsingar um vegabréfsáritanir sem útlendingar þurfa vegna ferðalaga til Íslands.

Endurnýjun ökuskírteinis

Hægt er að sækja um endurnýjun á íslensku ökuskírteini í sendiráðinu í Osló.

Umsókninni þarf að fylgja svokallað kennispjald, sem útvega þarf frá Ríkislögreglustjóra. Nauðsynlegt er að hringja í sendiráðið fyrirfram, gefa upp nafn og íslenska kennitölu og biðja sendiráðið að útvega kennispjaldið. Fylla þarf út umsókn í sendiráðinu, en henni þarf að fylgja ein nýleg mynd af umsækjenda. Almennt gjald fyrir ökuskírteini er NOK 350. Það skal greiða fyrirfram í banka/netbanka inn á reikning sendiráðsins nr.: 9235 21 50985 í BNBank. Ekki er tekið við greiðslukortum í sendiráðinu

Afgreiðslutími ökuskírteinis er um fjórar vikur.

Bent er á að ætlast er til að Íslendingar sem eru með fasta búsetu erlendis, þ.e.a.s. búnir að búa í meira en 6 mánuði í landinu, leggi inn íslenska ökuskírteinið og fái útgefið skírteini þess lands í staðinn. Það eru lögregluyfirvöld í viðkomandi landi sem óska eftir þessu. Ökuskírteinið er því lagt inn hjá embættinu sem gefur út nýtt skírteini og sér það embætti um að senda ökuskírteinið til Íslands. Ef íslendingur hefur tapað sínu íslenska ökuskírteini þarf hann að panta staðfestingu á ökuréttindum sínum frá Lögreglunni í Reykjavík áður en hægt er að sækja um ökuskírteini í Noregi.

Lögreglan í Reykjavík

Statens vegvesen

Íslendingafélög

Alþingiskosningar

Kosningaréttur Íslendinga í sveitarstjórnarkosningum í Noregi

Íslenskir ríkisborgarar hafa ekki kosningarétt í þingkosningum í Noregi, jafnvel þótt þeir hafi þar búsetu.

Íslenskir ríkisborgarar sem skráðir eru með búsetu í Noregi geta kosið í sveitarstjórnarkosningum skv. ákvæðum laga um sveitarstjórnarkosningar

Upplýsingar fyrir Íslendinga sem flytjast til Noregs

Upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar, Hallo Norden, veitir upplýsingar m.a. um atriði er varða flutning á milli Norðurlanda, þ.m.t. skásetningu, ”kennitölur” o.fl.

Íslenskuskólinn er skóli á Netinu fyrir íslensk börn á leik- og grunnskólaaldri sem búsett eru erlendis.

 

 

Póstfang:

Islands Ambassade 0244 Oslo


Netfang:


Fax:

+47 2283 0704


Opnunartími:

Mán-fös
9:00 - 16:00


Tungumál:

Íslenska, norska, enska, franska, þýska.


 

Leturstærð: