Islands ambassad - Stockholm, Sverige

Kommendörsgatan 35, SE-114 58 Stockholm - Tel +46 (0) 8 442 8300



Nyheter och evenemang


Nyheter och evenemang

Umsókn um íslensk vegabréf

afgreiðsla umsókna hjá sendiráðinu

4.9.2006

Hinn 6. september 2006 hófst útgáfa nýrrar gerðar íslenskra vegabréfa og verða umsækjendur að koma í eigin persónu til sendiráðsins þar sem lífkennamynd er tekin af viðkomandi á staðnum. Þar með er óþarfi að koma með passamynd.

Opnunartími sendiráðsins í Stokkhólmi er frá kl. 9-16 alla virka daga, en afgreiðslutími fyrir vegabréf er frá kl. 10-14 alla virka daga.  Mælst er til þess að umsækjendur hafi í huga að frágangur umsóknar og myndataka getur tekið nokkra stund.

Vakin er athygli á því að ræðismenn geta ekki lengur tekið við umsóknum um vegabréf.  Ræðismenn geta eftir sem áður haft milligöngu um útgáfu neyðarvegabréfa og framlengingu vegabréfa, eftir því sem við á í sérstökum neyðartilfellum.

Gjald fyrir vegabréf er 525 SEK fyrir 18-66 ára en 196 SEK fyrir aðra.  Við hraðafgreiðslu vegabréfa er gjaldið 1.040 SEK fyrir 18-66 ára en 386 SEK fyrir aðra.  Hraðafgreiðsla tekur að venju minnst 2 virka daga. Venjuleg afgreiðsla tekur um 2 vikur.
Sérstök athygli er vakin á því að ekki er hægt að taka við greiðslukorti, greiða verður fyrir með reiðufé.

Við vegabréfaumsóknir barna er þess krafist að báðir foreldrar eða forráðamenn komi í sendiráðið með barnið og samþykki með undirskrift á fylgiskjali. Skjal það má finna hér.  Foreldrar eða forráðamenn þurfa að framvísa persónuskilríkjum.  Börn sem fædd eru erlendis verða að vera komin með kennitöluskráningu í íslensku þjóðskránni.  Framvísa þarf fæðingarvottorði barns, hafi það ekki fengið útgefið vegabréf fyrr.

ATH ! Nafnabreytingar !
Ef umsækjandi hefur tekið upp nýtt eftirnafn eða breytt á einhvern hátt eftirnafni sínu þarf að vera búið að ganga frá tilkynningu um slíkt til þjóðskrár á Íslandi (www.thjodskra.is).  Slíkt gerist ekki sjálfkrafa þó makar taki upp nafn hvors annars við hjónavígslu í Svíþjóð.

Vegabréfin eru útbúin á Íslandi og póstsend til umsækjanda.

Þegar við á er einnig hægt að framlengja gildistíma vegabréfs um eitt ár frá þeim degi sem að vegabréfið rann út.  Þá nægir að póstsenda vegabréfið til sendiráðsins ásamt greiðslu, 140 SEK (framlenging ásamt póstgjaldi).

Í brýnustu neyð getur sendiráð gefið út neyðarvegabréf.  Neyðarvegabréf eru einungis gefin út ef umsækjanda gefst ekki tími til að sækja um venjulegt vegabréf með hraðafgreiðslu í sendiráðinu.  Taka skal fram að neyðarvegabréf eru ekki ákjósanleg ferðaskilríki.

 

 


Fax:

+46 - (0) 8 660 7423


Öppettider:

Måndag-fredag
09:00 - 16:00


Språk:

Isländska, svenska, engelska.


 


Leturstærð: