Islands ambassad - Stockholm, Sverige

Kommendörsgatan 35, SE-114 58 Stockholm - Tel +46 (0) 8 442 8300



Nyheter och evenemang


Nyheter och evenemang

Sendiherra afhendir í Kúveit
Sendiherra afhendir í Kúveit
Sendiherra Íslands, Guðmundur Árni Stefánsson afhendir emírnum af Kúveit trúnaðarbréf sitt

Sendiherra Íslands afhendir trúnaðarbréf í Kúveit

16.1.2008

Guðmundur Árni Stefánsson, sendiherra, afhenti í dag, 16. janúar 2008, emírnum af Kúveit, Sheikh Sabah Al-Ahmed Al-Jaber Al-Sabah, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Kúveit með aðsetur í Stokkhólmi.

Við hátíðlega athöfn í höll emírsins ræddu þeir sameiginleg hagsmunamál þjóðanna og voru um það sammála að þrátt fyrir landfræðilega fjarlægð hvor frá annari, þá ættu þjóðirnar sitthvað sameiginlegt. Þær væru báðar efnahagslega sterkar, byggðu á náttúruauðæfum úr iðrum jarðar; Kúveit á olíu og Ísland á jarðvarma.

Emírinn sagðist dást að dugnaði og getu íslensku þjóðarinnar sem þrátt fyrir smæðina væri kröftug á alþjóðavettvangi. Kvaðst hann vonast til þess að tilkoma nýs sendiherra myndi efla og dýpka samstarfið á sem flestum sviðum.

Sendiherra þakkaði emírnum vinsamleg ummæli og bar honum kveðjur forseta Íslands og sagði einnig að utanríkisráðherra Íslands hefði verið boðið í opinbera heimsókn til Kúveit, sem hann hefði þegið og tímasetningar væru nú til athugunar. Emírinn sagðist fagna þessu sérstaklega. Þá ræddu sendiherra og emírin framboð Íslands til öryggisráðsins. Voru þau orðaskipti á mjög jákvæðum nótum.

Sendiherra hittir einnig utanríkisráðherra Kúveit og aðstoðarutanríkisráðherra, sem og fjölmarga embættismenn í utanríkisráðuneytinu, þar á meðal skrifstofustjóra Evrópuskrifstofu ráðuneytisins.

Nokkrir Íslendingar búa og starfa í Kúveit og hefur sendiherra hitt þá að máli. Fer vel um Íslendingana í Kúveit.



 

 


Fax:

+46 - (0) 8 660 7423


Öppettider:

Måndag-fredag
09:00 - 16:00


Språk:

Isländska, svenska, engelska.


 


Leturstærð: