Islands ambassad - Stockholm, Sverige

Kommendörsgatan 35, SE-114 58 Stockholm - Tel +46 (0) 8 442 8300



Nyheter och evenemang


Nyheter och evenemang

Þorrablót - fréttatilkynning frá ÍSÍS kórnum:

4.2.2008

Fréttatilkynning frá ÍSÍS kórnum:

"ÞORRABLÓT - Veisla ársins! Þann 16. febrúar 2008 verður hið langþráða Þorrablót endurvakið.

Vegna fjölda áskorana hefur verið ákveðið að efna til veislu. Þau heiðurshjónin Gullý og Siggi, sem staðið hafa að velheppnuðum blótum fyrri ára, munu annast blótið í samvinnu við ÍSIS kórinn.

Þorri verður blótaður á Restaurang Prince Palace, Veddestavägen 13 í Barkarby. Takið járnbrautarlestina (pendeltåg) til Barkarby, en þaðan er smá göngutúr að veitingahúsinu. Fyrir þá sem heldur vilja taka leigubil, verða slíkir bílar fyrir utan brautarstöðina gegn vægu verði.

Á boðstólum verður þorramatur frá Íslandi (ásamt öðru úrvali fyrir þá sem borða ekki kjöt eða þorramat) og er einn íslenskur bjór innifalinn í miðaverði.

Drykkir verða á sanngjörnu verði.

Pylsuvagninn verður opinn með "Bæjarins bestu".   Gott að fá "Eina með öllu"  áður en haldið er heim á leið.

Ýmislegt verður til skemmtunar, en eins og segir í  Hávamálum,  "Maður er manns gaman".  Það er alltaf gaman að hittast yfir bita af góðum mat, og hvað er skemmtilegra en að njóta þorramatarins með öðrum.

Sendiherra Guðmundur Árni Stefánsson ávarpar veislugesti.

Gestur kvöldsins er hinn góðkunni Ómar Ragnarsson, ásamt undirleikara sínum Hauki Heiðari.

ÍSIS kórinn syngur og leiðir einnig fjöldasöng.

Happdrætti með góðum vinningum!

Kátir karlar koma frá Gautaborg, Júlli og Ingvar spila gömlu góðu danslögin fram á rauða nótt.

Þið sem lumið á einhverju skemmtiefni hafið endilega samband við okkur, tillaga um uppákomum, smásögur, skrítlur, söng o.fl.  Allar hugmyndir eru velkomnar.

Tryggið ykkur miða sem fyrst! 

Miðaverð er 395.-  (bara á ballið er 100.-)

Borgun skal hafa borist í síðasta lagi 4 febrúar á reikning: Gullý-Siggi Hb Postgiro nr: 103 46 38-5, merkt Þorrablót 2008.  Gleymið ekki að gefa upp nafn greiðanda!

Nánari upplýsingar fást  hjá Gullý í síma 0708-728 968, 08-760 10 07 og Karin í síma 08-32 57 74.

Heimasíða kórsins er www.freewebs.com/isistokk

Húsið opnar kl. 18:00 - Borðhald hefst kl. 19:00 - Dansað verður til kl. 3 um nótt.

Íslendingar og aðrir Íslandsvinir eru hjartanlega velkomnir!"



 

 


Fax:

+46 - (0) 8 660 7423


Öppettider:

Måndag-fredag
09:00 - 16:00


Språk:

Isländska, svenska, engelska.


 


Leturstærð: