Islands ambassad - Stockholm, Sverige

Kommendörsgatan 35, SE-114 58 Stockholm - Tel +46 (0) 8 442 8300



Nyheter och evenemang


Nyheter och evenemang

Íslenski hesturinn lífseigur

1.2.2008

Hnota var orðin 16 ára gömul þegar hún meiddist alvarlega og eigandinn, Marie Lundfeldt, tók þá erfiðu ákvörðun að binda enda á líf hennar. Ákveðið var að gefa Hnotu banvænan skammt af svefnlyfjum úti á túni svo dauðdaginn yrði henni sem “þægilegastur”. Dýralæknir mætti á staðinn og gaf merinni vænan skammt svefnlyfja. Marie strauk Hnotu, kvaddi hana hinstu kveðju og lagði dúk yfir sinn trausta vin. Stuttu síðar kom dýra-sjúkrabíll til að sækja skrokkinn, en þegar að var komið lá einungis dúkurinn í grasinu. Hnota var horfin. Marie dró upp vasaljós og kom auga á Hnotu þar sem hún lá í um 20 metra fjarlægð með uppreist höfuð og horfði á hana!

Uppi varð fótur og fit. Annar dýralæknir var kallaður til og lauk hann verkinu. Fyrri dýralæknirinn fékk skömm í hattinn og bað Marie Lundfeldt afsökunar á þessum mistökum í starfi.

 

Já, það er ekki ofsögum sagt af lífseiglu íslenska hestsins.



 

 


Fax:

+46 - (0) 8 660 7423


Öppettider:

Måndag-fredag
09:00 - 16:00


Språk:

Isländska, svenska, engelska.


 


Leturstærð: