Nyheter och evenemang
Duggholufólkið á Stockholm International Filmfestival Junior
6. - 13. apríl nk.
Íslenska kvikmyndin Duggholufólkið, eða "No Network" eins og hún heitir á ensku, verður sýnd á Stockholm International Filmfestival Junior 6. - 13. apríl næstkomandi. Leikstjóri myndarinnar, Ari Kristinsson, verður viðstaddur fyrstu sýninguna og mun svara spurningum áhugasamra gesta í lokinn.
Duggholufólkið fjallar um Kalla, tólf ára gamalt borgarbarn, sem hefur alist upp hjá einstæðri móður sinni í Reykjavík. Hann er sendur til föður síns á Vestfjörðum yfir jólin en kemst fljótlega að því að þar er ekki allt eins og á mölinni. Úrvalið af sjónvarpsefni er heldur takmarkað og varla tölvuleikur í sjónmáli. Kalli tekur því þá djörfu ákvörðun að strjúka en lendir í miklum snjóbyl og týnist. Þá hefjast ævintýrin fyrir alvöru, enda kemst Kalli þá í kynni við bæði ísbjörn og drauga.
Í aðalhlutverkum eru Bergþór Þorvaldsson, Þórdís Hulda Árnadóttir og Árni Beinteinn Árnason, sem öll eru ung að árum, en þeim til stuðnings eru Brynhildur Guðjónsdóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir og Erlendur Eiríksson.
Mælt er með myndinni fyrir 6 ára og eldri.
Duggholufólkið (No Network) verður sýnd sem hér greinir:
Skandia - sunnudagur 6. apríl kl. 12:00
Skandia - mánudagur 7. apríl kl. 11:30
Skandia - föstudagur 11. apríl kl. 09:00 (sænskt tal)
Skandia - laugardagur 12. apríl kl. 12:00
Nánari upplýsingar um myndina og kvikmyndahátíðina er að finna hér.



