Nyheter och evenemang
Íslenskum ríkisborgurum ráðið frá ferðalögum til Búrma og Líbanon
Í kjölfar náttúruhamfara sem gengu yfir Búrma (Mjanmar) 2. maí síðastliðinn þá ráðleggur utanríkisráðuneytið Íslendingum frá öllum ferðalögum til landsins nema brýna nauðsyn beri til.
Vegna ófriðarástands í Líbanon þá ráðleggur utanríkisráðuneytið íslenskum ríkisborgurum eindregið frá því að ferðast til landsins. Ráðuneytið óskar jafnframt eftir upplýsingum um þá Íslendinga sem kunna að vera í landinu. Nánari upplýsingar veitir borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins í síma 545-9900.



