Nyheter och evenemang
Íslensk Eurovision veisla í Belgrad
Íslenski Eurovision hópurinn sem staddur er í Serbíu blés til tónlistarveislu í gærkvöldi. Það var Rigg sem skipulagði veisluna í samvinnu við Guðmund Árna Stefánsson, sendiherra Íslands í Serbíu sem staðsettur er í Stokkhólmi, ræðismann Íslands í Serbíu, Slobodan Micic og Irenu Kojic, ræðismann Serba á Íslandi.
Grétar Örvarsson bauð gesti velkomna og bað Guðmund Árni, sendiherra, um að segja nokkur orð, en hann var viðstaddur veisluna ásamt ræðismanni Íslands í Serbíu. Að því loknu voru bornar fram veitingar og í kjölfarið steig Eurobandið á svið og lék dagskrá sína við mikinn fögnuð viðstaddra.
Fjöldi gesta var á bilinu 450-500 manns og urðu margir frá að hverfa.



