Nyheter och evenemang
Góð aðsókn á íslensku kvikmyndahátíðina
Á sunnudaginn lauk þriggja daga kvikmyndahátíð sem Sendiráð Íslands stóð fyrir í samstarfi við Straum og Icelandair.
Hátíðin opnaði á föstudaginn með sérstakri boðsýningu á myndina "Foreldrar", en ein aðal leikona myndarinnar og framleiðandi Nanna Kristín Magnúsdóttir var viðstödd og svaraði spurningum gesta eftir sýninguna.
Fyrir sýningu á "Mýrinni" á sunnudagskvöldið söng Lögreglukór Reykjavíkur, í fullum skrúða, tvö lög við mikinn fögnuð bíógesta.
Aðsókn á hátíðina var mjög góð, en talið er að um 300-400 manns hafi lagt leið sína í íslenskt bíó um helgina. Uppselt var á tvær sýningar, "Sigur Rós - Heima" og "Börn".



