Nyheter och evenemang
Íslensk þjóðhátíðarhöld í Stokkhólmi
sunnudaginn 15. júní
Þjóðhátíðardagskráin í Stokkhólmi sunnudaginn 15. júní er svohljóðandi:
Hátíðarguðsþjónusta í Finnsku kirkjunni kl. 13.30. ÍSÍS kórinn syngur undir stjórn Brynju Guðmundsdóttur. Ingibjörg Guðlaugsdóttir leikur á básúnu. Svava Kr. Ingólfsdóttir syngur einsöng. Stúlkur úr unglingakór Grafarvogskirkju syngja undir stjórn Svövu og undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Ferming, fermdur verður, Þorkell Þorvaldsson. Altarisganga. Prestur sr. Ágúst Einarsson. Kirkjukaffi í umsjá ÍSÍS kórsins.
Þjóðhátíðarsamkoma í Hagaparken kl. 16. Hist verður við kopartjöldin og grillað, sungið og farið í leiki. Stúlkur úr unglingakór Grafarvogskirkju mæta og syngja ættjarðarlög. Hægt verður að kaupa íslenska fána og blöðrur og fá andlitsmálningu (kjörið tækifæri fyrir þá sem hafa lengi langað en ekki þorað að fá loksins fánalitina á fésið).
Þjóðhátíðargestir mæti með eigið nesti eða pylsur á grillið, grill verður á staðnum ef grillbanni Stokkhólmsborgar verður aflétt.
ATHUGIÐ ! Ef veðrið skyldi bregðast verður samkoman færð í samkomusal finnsku kirkjunnar, Gamla Stan. Breytingar á dagskrá, ef einhverjar verða, bæði tilkynntar á heimasíðu Íslendingafélagsins www.islendingafelagid.se og útsendingarpóstlista Íslendingafélagsins.



