Islands ambassad - Stockholm, Sverige

Kommendörsgatan 35, SE-114 58 Stockholm - Tel +46 (0) 8 442 8300



Nyheter och evenemang


Nyheter och evenemang

Golfkúla
Golfkúla
Golfkúla

Síðustu forvöð ! Enn eru sæti laus á "Íslandsmótið" í golfi í Stokkhólmi 5. september

1.9.2008

Síðustu forvöð ! Enn eru nokkur sæti laus ! Glæsileg verðlaun eru í boði; Fyrir fyrsta sæti er flugmiði til og frá Íslandi í boði Icelandair.  Önnur verðlaun eru í boði sendiráðsins, konsúlsins, ferðaskrifstofunnar Islandia, verslunarinnar Norr og 3sagas.

Sendiráðið í Stokkhólmi, ferðaskrifstofan Islandia og aðalræðismaður Íslands í Malmö efna til golfkeppni fyrir Íslendinga og Íslandsvini í Svíþjóð á velli Kungsängens Golfklubb í Kungsängen rétt norðan við Stokkhólm föstudaginn 5.september kl 13.00.

Völlur Kungsängen Golfklubb er einn af bestu golfvöllum Svíþjóðar og eru margar stórmeistarakeppnir haldnar á þessum velli árlega. Nánari upplýsingar um völlin má sjá á heimasíðu hans. www.kungsangengc.se.

Fyrsti rástími er bókaður kl. 13.00 og svo er haldið áfram fram eftir degi.       

Eftirfarandi er í boði;
a)  SEK 450 á mann (næstum hálfvirði) fyrir vallargjald, kort og kúlukort á æfingarsvæðið.
b)  SEK 550 á mann með sama og a) ásamt hádegisverði á veitingastað vallarins.
 
Síðasti skráningadagur er 15.ágúst og skal senda tölvupóst með upplýsingum til stosvar@mfa.is  

Nánari upplýsingar veita Ásta asta@islandia.se  og Ágúst agust.jonsson@telia.com   
 
Mótshaldarar vonast til að sjá sem flesta og eins og í öllum alvöru keppnum eru glæsilegir vinningar í boði.  

 



 

 


Fax:

+46 - (0) 8 660 7423


Öppettider:

Måndag-fredag
09:00 - 16:00


Språk:

Isländska, svenska, engelska.


 


Leturstærð: