Nyheter och evenemang
Tilkynning frá íslensku kirkjunni
Fermingarundirbúningur Íslensku kirkjunnar í Svíþjóð hefst með fermingarmóti á Åh Stiftgård 26.-28. sept. Unglingar koma á mótið víðs vegar að úr Svíþjóð og tækifæri gefst til að kynnast og byrja fræðsluna af krafti.
Á fermingarmótinu samtvinnast nám, leikur og skemmtileg samvera. Einnig koma þangað unglingar frá Noregi og Danmörku með prestum sínum þannig að á mótinu verða að vonum fjöldi íslenskra unglinga.
Fræðslan heldur áfram eftir þessa helgi með því að unglingarnir sækja guðsþjónustur nálægt heimilinu og skila verkefnum til prestsins með tölvupósti.
Einnig verða fræðslusamverur þar sem íslenskar guðsþjónustur eru eða ef presturinn á leið um. Næsta vor hittist fermingarhópurinn að nýju 8. – 10. maí.
Sumir kjósa að fermast hér í Svíþjóð en aðrir heima á Íslandi.
Þeir sem vilja vera með í fermingarfræðslu í vetur þurfa að skrá sig fyrir 10. sept, með því að senda tölvupóst á kirkjan@telia.com eða hringja í sr. Ágúst í síma: 031 704 58 91 eða 070 286 39 69
Íslenska kirkjan í Svíþjóð
Kirkjustarfið hefur höfuðstöðvar í Gautaborg og þar starfar sóknarnefnd sem skipuleggur starfsemina í samvinnu við prestinn.
Prestur Íslendinga í Svíþjóð er sr. Ágúst Einarsson. Reglulegt helgihald og kirkjuskólar eru í Gautaborg, Stokkhólmi, Uppsölum, Málmey og Lundi en presturinn annast þjónustu og sérathafnir víðsvegar í Svíþjóð.
Fréttabréf kirkjunnar er sent út tvisvar á ári , á þau heimilisföng sem við vitum af, í september og janúar.
Sími og skrifstofa: Símatími á skrifstofu er mán., þri. og fim. kl. 10-12 og viðtöl eftir samkomulagi
Sími: 031-704 58 91 Farsími: 070-286 39 69
Póstfang: Västra Frölunda kyrka, Frölunda Kyrkogata 2, 421 47 V. Frölunda
Heimasíða kirkjunnar: www.kirkjan.se Netpóstfang: kirkjan@telia.com



