Islands ambassad - Stockholm, Sverige

Kommendörsgatan 35, SE-114 58 Stockholm - Tel +46 (0) 8 442 8300



Nyheter och evenemang


Nyheter och evenemang

Sendiherra og sigurvegari golfmótsins 2008, Guðjón Ingi Sigurðsson
Guðmundur Árni sendiherra og Guðjón Ingi Sigurðsson, sigurvegari mótsins

Vel lukkað Golfmót

11.9.2008

"Íslandsmótið" í golfi var háð síðastliðinn föstudag, þar sem 26 keppendur, Íslendingar og sænskir Íslandsvinir, háðu drengilega keppni. Ræst var af stað kl 13.00 og allir keppendur voru komnir í hús upp úr kl 19.30. Þetta var því langur en afar ánægjulegur dagur.

Eftir að keppendur höfðu nærst og svalað þorsta sínum voru niðurstöður kynntar og verðlaun veitt.

Guðjón Ingi Sigurðsson sigraði punktakeppni mótsins og í sigurlaun hlaut hann ferð fyirr tvo í boði Icelandair, til og frá Íslandi.

Styrmir Karlsson sigraði púttkeppnina, Benny Wahlberg sigraði keppnina "næst holu" og Ásta Arnþórsdóttir átti lengsta upphafshöggið á 18. holu.

Það var einróma álit keppenda og mótshaldara að mótið hafi farið vel fram og sé skemmtileg leið fyrir Íslendinga og Íslandsvini að kynnast og eiga góða stund saman. Nú þegar hafa borist skráningar í næsta mót og má því leiða að því líkur að "Íslandsmótið" í golfi sé orðið að árlegum viðburði.




Islandstävlingen i golf lyckades bra. 26 islänningar och Islandsvänner tävlade och hade en trevlig golfdag. Tävlingen startade kl 13.00 och slutade kl. 19.30 med prisutdelning.

Guðjón Ingi Sigurðsson vann första pris (poängbogey), flygbiljett till Island tur och retur, med Icelandair.

Styrmir Karlsson vann putttävlingen, Benny Wahlberg vann närmast hål (på hål 15) och Ásta Arnþórsdóttir vann längsta drive (på 18 hål).

Vi ser framemot att träffas nästa år och hoppas se fler golfspelare på banan.

 

 

 

 


Fax:

+46 - (0) 8 660 7423


Öppettider:

Måndag-fredag
09:00 - 16:00


Språk:

Isländska, svenska, engelska.


 


Leturstærð: