Islands ambassad - Stockholm, Sverige

Kommendörsgatan 35, SE-114 58 Stockholm - Tel +46 (0) 8 442 8300



Nyheter och evenemang


Nyheter och evenemang

Vigsla reidvallar í Eskilstuna
Vigsla reidvallar í Eskilstuna
Guðmundur Árni sendiherra klippir á borðann

Sendiherra vígir reiðvöll fyrir Íslandshesta í Svíþjóð

24.9.2008

Sendiherra Íslands í Svíþjóð, Guðmundur Árni Stefánsson, vígði að viðstöddum 500 gestum, nýjan og glæsilegan reiðvöll fyrir Íslandshesta í Sundbyholm, nærri Eskilstuna, við hátíðalega athöfn þann 13. september síðastliðinn. Völlurinn er sérhannaður þannig að hann henti vel fyrir íslenska hestinn, en Eiðfaxi, fjölmennt og öflugt félag eigenda íslenska hestsins á svæðinu, hafði frumkvæði að byggingu vallarins og naut við það fjárhagslegs stuðnings sveitarfélagsins og lénsins.

Í ræðu sinni talaði Guðmundur Árni, um að íslenski hesturinn væri einn besti og kröftugasti sendiherra sem Ísland ætti víða um heim og þar væri Svíþjóð engin undantekning. Íslenski hesturinn hefði stuðlað að miklum og góðum samskiptum og vináttutengslum milli Íslendinga og Svía. Talið er að fjöldi íslenskra hesta í Svíþjóð sé um 24 þúsund.  



 

 


Fax:

+46 - (0) 8 660 7423


Öppettider:

Måndag-fredag
09:00 - 16:00


Språk:

Isländska, svenska, engelska.


 


Leturstærð: