Islands ambassad - Stockholm, Sverige

Kommendörsgatan 35, SE-114 58 Stockholm - Tel +46 (0) 8 442 8300



Nyheter och evenemang


Nyheter och evenemang

Árni Páll á málþingi um öryggisráðið
Árni Páll, Jan Eliasson og Carl-Einar Stålvant
Málþing um aukið hlutverk Norðurlandanna á vettvangi Sameinuðu þjóðanna

Árni Páll Árnason alþingismaður og formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs greindi frá framboði Íslands til öryggisráðsins

3.10.2008

Árni Páll Árnason alþingismaður og formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, Jan Eliasson fyrrum utanríkisráðherra Svíþjóðar og Carl-Einar Stålvant lektor við sænska varnarmálaháskólann, tóku hinn 1. október sl. þátt í málstofu, sem boðað var til á vegum upplýsingaskrifstofu norrænu ráðherranefndarinnar í Svíþjóð (Norden i Fokus) og helguð var efldu hlutverki Norðurlandanna á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og framboði Íslands til öryggisráðsins. Stjórnandi málstofunnar var Aleksander Gabelic, forstöðumaður félags Sameinuðu þjóðanna í Svíþjóð.

Árni Páll futti framsöguerindi og greindi þar frá ástæðum þess að Ísland sækist nú í fyrsta sinn eftir sæti í öryggisráðinu og hverjar áherslur verði nái Ísland kosningu. Þá sköpuðust líflegar pallborðsumræður um aukið hlutverk Norðurlandanna á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, varnarmál, hin norrænu gildi, áherslur í umhverfismálum og málefni Norðurslóða.

Jan Eliasson, sem var forseti allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna 2005-2006 og starfar nú sem sérstakur fulltrúi framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna í Darfúr, áréttaði að um sameiginlegt norrænt framboð til öryggisráðsins væri að ræða og kvaðst hann koma til með að vinna mjög náið með íslenska framboðsteiminu í kosningabaráttunni í New York síðustu vikuna fyrir kosningarnar, sem verða 16. október nk.

Málstofan, sem haldin var í Kulturhuset í miðbæ Stokkhólmsborgar, var afar vel sótt, en til hennar var boðið m.a. fulltrúum fjölmiðla, stjórnmálamönnum, háskólafólki, embættismönnum, fulltrúum erlendra sendiráða og alþjóðastofnana, o.fl.



 

 


Fax:

+46 - (0) 8 660 7423


Öppettider:

Måndag-fredag
09:00 - 16:00


Språk:

Isländska, svenska, engelska.


 


Leturstærð: