News and Events
17. júní hátíðarhöld þann 14. júní
Laugardaginn 14. júní n.k. verða 17. júní hátíðarhöld í St. Lukes kirkjunni á Syndey Street í Chelsea SW3 6NH beint á móti Bromton sjúkrahúsinu (næstu jarðlestarstöðvar eru South Kensington eða Sloane Square. Smellið hér fyrir kort).
Dagskráin hefst klukkan 14:00 í kirkjunni með hátíðardagskrá.
Meðal annars mun Sverrir Haukur Gunnlaugsson, sendiherra Íslands á Bretlandseyjum flytja ávarp, Íslenski kórinn í London mun syngja undir stjórn Þóru Hallgrímsdóttur, íslenskir einsöngvarar og einleikari munu flytja tónverk, talað verður sérstaklega við börnin og Fjallkonan flytur ljóð.
Á eftir verður safnast saman í garði kirkjunnar og boðið upp á dagskrá fyrir börnin og til sölu verður íslenskt góðgæti.
Ef veður er gott er fólk hvatt til að koma með teppi og "lautartúrabúnað" í garðinn.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Íslendingafélagið í London og
Íslenski söfnuðurinn í London


