Fastanefnd Íslands hjá S.þ. - New York

800 Third Avenue, 36th floor, New York NY 10022 - Sími: +1 (212) 593 2700


Tungumál


Um S.þ.

Um Sameinuðu þjóðirnar

Á ensku vefsetri Sameinuðu þjóðanna er aðgangur að mjög ítarlegum upplýsingum um Sameinuðu þjóðirnar. Þar er meðal annars að finna beinar tengingar við eftirfarandi upplýsingabrunna:

UN Millennium Development Goals: Þúsaldarmarkmið S.þ. eru þar kynnt og jafnframt yfirlit um árangur og stöðu markmiða, en þjóðarleiðtogar samþykktu árið 2000 að stefna að því að afnema fátækt í heiminum fyrir árið 2015.

United Nations News Centre er fréttamiðstöð Sameinuðu þjóðanna. Fréttamiðstöðin sinnir þörfum fjölmiðla um allan heim, en þangað geta allir leitað og fengið tafarlausan aðgang að öllu, sem á sér stað á vettvangi Sþ. Þar er stöðugt uppfært yfirlit frétta, auk þess sem vísað er þar beint í dagskrá aðalframkvæmdastjóra, fréttatilkynningar, fréttamannafundi, dagskrá allra stofnana og beinar vef-útsendingar frá fundum. Þar er líka beinn aðgangur að nýju fréttabréfi Sameinuðu þjóðanna, UN Daily News, sem kemur út daglega. Auk þess er þar dagatal með öllum viðburðum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, Calendar of Events.

Main Bodies er undirvefur með ítarlegum upplýsingum um allar stofnanir Sameinuðu þjóðanna, dagskrá þeirra og aðgangur með tenglum .

Renewing the UN er undirvefur um þær endurbætur á starfi, sem standa fyrir dyrum og ræddar verða á leiðtogafundi S.þ. í september. nk.

CyberSchoolBus er vefur með efni fyrir skólanema og þá sem undirbúa sig undir þátttöku í Model UN verkefninu, Sameinuðu þjóðir unga fólksins.

Documents, Maps er tenging í skjalasafn Sameinuðu þjóðanna, ODS, en þar er að finna öll þingskjöl, sem lögð eru fyrir allsherjarþingið, nefndir þess og öryggisráðið sem og samþykktar ályktanir og samninga. Aðgangur að sumum þessara skjala er enn lokaður fyrir öðrum en fastanefndum, en unnið er að því að gera öll þingskjöl aðgengileg almenningi.



 

 


Fax:

(212) 593 6269


Opnunartímar:

Mán-fös
09:00 - 16:30


Tungumál:

Íslenska, enska.


 

Leturstærð: