Viðskiptaþjónusta
Viðskiptaþjónusta
Þjónusta
Viðskiptaþjónusta utanríkisráðuneytisins er starfrækt í sendiskrifstofum Íslands til að efla samkeppnisstöðu og árangur íslenskra fyrirtækja í útrás. Þar er veitt þjónusta á borð við markaðsathuganir og leit að hugsanlegum samstarfsaðilum. Sendiskrifstofurnar geta einnig aðstoðað við að koma á fundum og tengslum við mikilvæga viðskiptavini.
Bæklingur um ráðgjafaþjónustu (PDF, 655 Kb)
Fyrir hverja?
Fyrir íslensk fyrirtæki sem eru búnir að taka stefnu á tiltekna markaði og vilja nýta veru viðskiptafulltrúanna á mörkuðum og þekkingu á staðháttum til að auka árangur í útflutningi.
Hvað gerir viðskiptafulltrúinn?
Viðskiptafulltrúar VUR starfa innan sendiskrifstofa Íslands og hafa greiðan aðgang að tengslaneti sendiskrifstofanna. Viðskiptafulltrúinn vinnur fjölbreytt markaðstengd verkefni sem eru sérsniðin að þörfum viðskiptavinarins. Verkefnin eru skilgreind í fyrirfram gerðum verksamningum. Viðskiptafulltrúarnir koma heim a.m.k. einu sinni á ári til að kynna sér starfsemi íslenskra fyrirtækja með heimsóknum og opnum viðtalstímum hjá Útflutningsráði.
Hvert er verksvið viðskiptafulltrúans?
Viðskiptafulltrúinn innir af hendi markaðsrannsóknir, leitar að umboðsmönnum og samstarfsaðilum, kemur á viðskiptasamböndum og aðstoðar við gerð kynningarefnis fyrir markaðssvæðið. Hann auðveldar einnig aðgang að stjórnvöldum erlendis og opnar dyr að stærri viðskiptaaðilum.
Verksamningar
Viðskiptaþjónustan í New York veitir fjölbreytta þjónustu og má sem dæmi nefna eftirfarandi:
· Viðskiptavakt
· Markaðskönnun
· Leit að umboðsaðilum
· Skipulagning viðskiptaheimsókna
· Aðstoð við skipulagningu kynninga og ráðstefna
· VUR á vettvangi – viðskiptafulltrúi fylgir fyrirtækjum á fund erlendra aðil
Umfang
Lengd verkefna er eins breytileg og þau eru mörg, allt frá nokkrum klukkustundum til árs eða meira í sérstökum tilvikum. Þjónusta viðskiptafulltrúa kostar kr. 4.000 á klst.
Nánari upplýsingar um ráðgjafaþjónustuna veita:
Hlynur Guðjónsson og Svanhvít Aðalsteinsdóttir

