Sendiráð Íslands - Pretoríu, Suður-Afríku

iParioli Office Park, Phase II, Block A2 - Sími: +27 (0)12 342 5885


Tungumál


Um sendiráðið

Um sendiráðið

Ísland opnaði fyrsta sendiráð sitt í Afríku í Mapútó, Mósambík, í júlí 2001. Þar bættust Angóla, Benín, Botsvana, Eþíópía, Gana, Kenía, Lesótó, Malaví, Malí, Namibía, Sambía, Senegal, Suður-Afríka, Svasíland og Tansanía í umdæmi sendiráðsins. Sendiráðið var flutt til Pretoríu í Suður-Afríku í nóvember 2005.

Meginhlutverk sendiráðs Íslands í Pretoríu er að gæta íslenskra hagsmuna, að hlúa að og efla tvíhliða samstarf Íslands og umdæmisríkja sendiráðsins og að efla fjölþjóða samskipti, t.d. á vettvangi Afríkusambandsins (AU) og NEPAD. Sendiráðið sinnir einnig upplýsingagjöf til einstaklinga og fyrirtækja sem hafa áhuga á efla viðskipta- og menningartengsl á milli Íslands og Afríku.

Sendiráðið tekur einnig þátt í fjölþjóðlegri þróunarsamvinnu.

Í Malaví, Mósambík, Namibíu og Úganda hafa umdæmisskrifstofur Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) stöðu sendiráðs í viðkomandi ríki en sendiherra situr í Pretoríu.

Sendiráð Íslands í Pretoríu leggur lið þeim Íslendingum sem búsettir eru í umdæmislöndunum, námsmönnum og ferðamönnum. Ennfremur er hægt að leita aðstoðar hjá kjörræðismönnum Íslands og umdæmisskrifstofum ÞSSÍ.

Sendiráðið var formlega opnað af Valgerði Sverrisdóttur, utanríkisráðherra Íslands, 26. febrúar 2007.

Embassy of Iceland, Pretoria

Embassy of Iceland
iParioli Office Park,
Phase II, Block A2,
Pretoria, South-Africa
Tel: +27 (0)12 342 5885
Fax: +27 (0) 12 342 0883
E-mail: emb.pretoria@mfa.is

 

 

Leturstærð: