Iceland partners with Institute for Security Studies
On 1 February 2008 Dr Jakkie Cilliers, Executive Director of the Institute for Secerity Studies (ISS), a regional research institution on human security and Her Exellency Dr Sigridur Duna Kristmundsdottir, Ambassador of Iceland in South Africa, signed an Agreement regarding Iceland’s core support to the Institution. In addition to pursuing research in the field of human security in Africa, ISS carries out research in the areas of conflict and peacekeeping. They are considered one of the leading institutions in their field on the Continent.
In becoming a Core Donor, Iceland requires access to the Institution’s research work and may request information as well as assignments, appraisals and such relevant issues to be made. The Institution furthermore assists in the training of Peace-keepers within Africa.
Iceland has requested that a part of its core donation, of 50.000 USD, will be used for the assignment “Women and peace development”. This entails research and improvements for women to access peacekeeping in conflict areas, thereby emphasising the involvement of women in these fields. Until now women and children have mainly been victims of the tradegies of wars. The result of this assignment as well as the project proposal are estimated to be complete by the end of 2008. Dr Cheryl Hendricks, Head of the Southern African Human Security Programme, will be head of the Assignment.
ISS is located in Pretoria, they also run offices in both Ethiopia and Kenia. Their operation is run solely by donations from Governments and Associations. Incorporated within the Institutions Core donors are the Nordic countries, Holland and Canada.
Further information on ISS can be found on their website: www.issafrica.org
Ísland til samvinnu við afríska rannsóknarstofnun í öryggismálum
Þann 1. febrúar síðastliðinn undirrituðu Dr. Jakkie Cilliers, forstöðumaður Institute for Securities Studies (ISS), sem er rannsóknarstofnun í öryggismálum, og Dr. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, sendiherra Íslands í Suður-Afríku, samstarfssamning sem kveður á um aðild Íslands að stofnuninni. ISS stundar rannsóknir á átökum og friðarumleitunum í Afríku og er talin ein fremsta stofnunin á sínu sviði í álfunni.
Með aðild sinni fær Ísland aðgang að rannsóknum stofnunarinnar, getur óskað eftir upplýsingum og látið vinna fyrir sig verkefni, úttektir og annað. Einnig aðstoðar stofnunin við þjálfun friðargæsluliða í Afríku.
Ísland hefur óskað eftir því að hluti af stofnframlagi þess, 50 þúsund Bandaríkjadalir, renni til verkefnisins “Konur og friðarþróun”. Er það rannsókn á aðgangi kvenna að friðarumleitunum á átakasvæðum og hvernig megi auðvelda slíkan aðgang. Lögð er áhersla á þátttöku kvenna við lausn átaka en hingað til hafa konur fyrst of fremst verið fórnarlömb þeirra hörmunga sem stríðsrekstur kallar yfir konur og börn. Áætlað er að niðurstöður verkefnsins ásamt framkvæmdatillögum liggi fyrir í árslok 2008. Fyrir verkefninu fer Dr. Cheryl Hendricks, sviðsstjóri hjá ISS.
ISS hefur aðsetur í Pretoríu en rekur auk þess skrifstofur í Eþíópíu og Kenía. Starfsemin er fjármögnuð með framlögum frá ríkisstjórnum og samtökum. Eru Norðurlöndin, auk Hollands og Kanada megin stuðningsaðilar stofnunarinnar.
Nánari upplýsingar um ISS er að finna á heimasíðu stofnunarinnar: www.issafrica.org



