The Makeba Centre for Girls Receives Support from Iceland
On 5 July 2008, Dr Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, Ambassador of Iceland, presented the Makeba Centre for Girls with a financial contribution on behalf of the Ministry for Foreign Affairs of Iceland, Landsbankinn Bank, Landsvirkjun and the Reykjavik Rotary Club, towards enlarging and improving the Centre’s facilities in the next few years.
World-renowned South African jazz singer Miriam Makeba, founder of the Makeba Centre for Girls, received the contribution at a ceremony at the Makeba Centre in Midrand, Gauteng Province in South Africa, in the presence of the Centre’s Board Members, staff and residents.
The Makeba Centre for Girls cares for homeless girls aged 10 to 17 who have suffered abuse. Placement in the Centre is offered to girls based on suggestions by social workers and on Court decisions. The Centre is run as a Non-Governmental Organization, and has no governmental affiliation. The Centre currently has eighteen residents, living in basic conditions. Preparation work for the enlargement and improvement of the Centre’s facilities has now started.
Makeba stúlknaheimilið hlýtur stuðning frá Íslandi
Laugardaginn 5. júlí 2008 afhenti Dr. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, sendiherra, Makeba stúlknaheimilinu (Makeba Centre for Girls), fjárstyrk frá Utanríkisráðuneytinu, Landsbanka Íslands, Landsvirkjun og Rótarýklúbbi Reykjavíkur, sem ætlaður er til uppbyggingar heimilisins á næstu árum.
Hin heimsþekkta suður-afríska jasssöngkona Miriam Makeba, stofnandi heimilisins, tók við framlagi Íslands að viðstaddri stjórn þess, starfsfólki og viststúlkum, við hátíðlega athöfn á heimilinu í Midrand í Gauteng héraði í Suður-Afríku.
Makeba stúlknaheimilið annast heimilislausar stúlkur á aldrinum 10 til 17 ára sem orðið hafa fyrir misnotkun. Stúlkum er boðin vist á heimilinu samkvæmt ábendingum félagsráðgjafa og úrskurði dómstóla. Heimilið er rekið sem frjáls félagasamtök, án nokkurrar íhlutunar stjórnvalda. Átján viststúlkur eru nú á heimilinu og búa þær þétt og við nauman kost. Undirbúningur að stækkun og endurbótum á húsakosti heimilisins er nú hafinn.



